Upplýsingar
Byggt 1930
201,9 m²
7 herb.
2 baðherb.
5 svefnh.
Sérinngangur
Lýsing
Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Fallegt og uppgert steypt einbýli við Hafnarbraut 25 á Dalvík, sem skiptist í tvær hæðir og ris - samtals 201,9 m² að stærð.
Húsið skiptist með eftirfarandi hætti:
Neðri hæð: Forstofa, geymsla/tæknirými, eldhús, stofa, borðstofa eitt svefnherbergi og salerni.
Efri hæð: Stigapallur, þrjú svefnherbergi, fataherbergi og baðherbergi.
Ris: Eitt herbergi og geymslur.
Forstofa er með flísum á gólfi. Inngangur í húsið er á norðuhlið hússins frá bílaplani. Innaf forstofu er flísalagt tæknirými og geymsla.
Eldhús er með eikarparketi á gólfi og snyrtilegri eikarinnréttingu. Innfelld þvottavél er í innréttingu og fylgir með við sölu. Uppgerð gömul búrinnrétting úr húsinu er í einu horni eldhússins.
Stofa og borðstofa eru með eikarparketi á gólfi og úr borðstofu er útgangur í garð til austurs.
Svefnherbergin eru fjögur talsins auk rýmis í risi. Eitt herbergi er á jarðhæð og þrjú á efri hæð og eru þau öll með eikarparketi á gólfi.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og spónlögðum eikarinnréttingum og þar er einnig þvottahúsinnrétting. Upphengt klósett, handklæða ofn og rúmgóð sturta með gleri. Opnanlegur gluggi er á baðherberginu. Salerni með parketi á gólfi er á neðri hæð, undir stiga á milli hæða.
Fataherbergi er með parketi á gólfi og þar eru veglegur spónlagði eikaraskápar. Gengt er úr fataherbergi í eitt herbergi efri hæðar sem og baðherbergi.
Risið er eitt opið rými en norðurhlutinn er stúkaður af sem herbergi. Upprunalegar gólffjalir eru á gólfi. Risið nýtist sem geymsla en hægt væri að bæta við herbergjum og/eða nýta rýmið á ýmsan hátt.
Garðurinn er snyrtilegur. Hellulagt bílaplan er norðan við húsið og hellulögð stétt bæði austan og sunnan við húsið. Snjóbræðsla er í stæði og stéttum, lokað kerfi. Grasflöt er bæði sunnan við hús og austan og einangraður og upphitaður geymsluskúr er austast á lóðinni.
Annað
- Gólfhiti er á báðum hæðum.
- Gegnheilt eikarparket er á gólfum að stærstum hluta á báðum hæðum, að votrýmum undanskildum, sem eru flísalögð.
- Húsið var allt tekið í gegn á árunum 2007 - 2008 en þá var hreinsað út úr húsinu og það byggt upp að nýju. Húsið er steypt, en er einangrað að utan og svo múrað. Þak var endurnýjað sem og gluggar, gler og hurðar. Bæði vatns og raflagnir voru endurnýjaðar sem og allar innihurðar, innréttingar og gólfefni. Jafnframt voru allar vatns- og raflagnir endurnýjaðar.
- Húsið stendur skammt frá fjörunni og úr húsinu og gott útsýni út á sjóinn.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.