Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Ástþór Reynir Guðmundsson
Vigdís R. S. Helgadóttir
Guðbjörg Helga Jóhannesdóttir
Gylfi Jens Gylfason
Sigrún Matthea Sigvaldadóttir
Sveinn Gíslason
Páll Guðmundsson
Þórarinn Arnar Sævarsson
Berglind Hólm Birgisdóttir
Þorsteinn Gíslason
Guðrún Lilja Tryggvadóttir
Brynjar Ingólfsson
Guðný Þorsteinsdóttir
Bjarni Blöndal
Þorsteinn Ólafs
Þórdís Björk Davíðsdóttir
Jóhann Kristinn Jóhannesson
Bjarný Björg Arnórsdóttir
Salvör Þóra Davíðsdóttir
Magga Sigríður Gísladóttir
Vista
parhús

Breiðhóll 24

245 Sandgerði

84.900.000 kr.

470.360 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2300336

Fasteignamat

83.000.000 kr.

Brunabótamat

89.730.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2007
svg
180,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
svg
Hjólastólaaðgengi

Lýsing

Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir 5 herb. parhús á einni hæð að Breiðhóli 24 í Sandgerði í Suðurnesjabæ. Innangengt er inn í bílskúr frá íbúðarrými og er bílskúr með millilofti. Alrýmið er einnig með aukinni lofthæð og þar er gengið út á afgirta verönd með heitum potti. Gólfhiti er í öllu húsinu. Virkilega falleg eign í nýlegu hverfi og er opið grænt svæði aftan við lóð húss. Í Sandgerði er leik- og grunnskóli, íþróttamiðstöð með sundlaug og ýmis þjónusta. Aðeins um 15 mínútna akstur er í frekari þjónustu og verslanir í Reykjanesbær. Svæðið er þekkt fyrir fallega strandlengju þar sem oft má sjá seli, fjölbreytt fuglalíf og rólegt umhverfi þar sem stutt er í gönguleiðir meðfram sjónum.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / [email protected] 

Eignin skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, eldhús, fjögur herbergi, baðherbergi og bílskúr. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 180,5 m2.


**HÉR MÁ NÁLGAST 3D MYNDBAND AF EIGNINNI, INNI- OG ÚTI. KÍKTU Í HEIMSÓKN!

*VINSAMLEGA SMELLIÐ HÉR TIL AÐ FÁ NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA
 
Smelltu hér og þú færð söluyfirlitið strax
Nánari lýsing:
Forstofa er inn af steyptri stétt. Mjög rúmgóð með fataherbergi inn af sem býður upp á þann möguleika að útbúa gestasalerni í hluta af þessu rými. Hvítur handklæðaofn á vegg. Ljósar gólfflísar. Dyrasíminn er myndavéladyrasími frá Eufy og tengdur við rafmagn. Bjallan tengist í app og hægt að bregðast við í gegnum snjallsímaforrit. 
Hol er inn af forstofu og þar er miðja hússins. Parket á gólfi sem flæðir inn um flest rými hússins. Einstaklega hátt til lofts og opið rými yfir í stofu og eldhús. 
Eldhús er inn af borðstofu og er með hvítri innréttingu á þremur veggjum. Mjög gott borðpláss. Uppþvottavél getur fylgt. 
Stofa og borðstofa er bjart rými með gluggum á tvo vegu og útgengi er út á sérafgirta viðarverönd með heitum potti. Aftan við verönd er grasflötur og opið svæði tengist því.
Baðherbergi er með dökkri innréttingu undir handlaug, veggfestum speglaskápi með ljósi, upphengdu salerni, hvítum handklæðaofni og þreplausri sturtu með gleri. 
Herbergi I er innst á svefnherbergisgangi og er stærst herbergjanna. Gluggar vísa út í garð til vesturs. Hvítir opnir fataskápar fylla einn vegg. Parket á gólfi.
Herbergi II er inni á herbergisgangi og vísa gluggar út í garð. Parket á gólfi.
Herbergi III er næst stofurými og vísa gluggar þess einnig út í garð. Parket á gólfi.
Herbergi IV er inn af gangi við þvottahús. Gluggar þess herbergis snúa út að bílaplani til austurs. Ljósar gólfflísar.
Þvottahús er inn af holi. Þaðan er gengið inn í bílskúr. Hvít innrétting með stæði og tengi fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð. Ljósar gólfflísar.
Bílskúr er 29 m2 og með góðri lofthæð. Milliloft nýtist vel sem geymslurými. Heitt og kalt vatn, niðurfall og skápaeining undir vaski. Lagnagrindin er bakvið svartar rennihurðar sem gerir bílsúrinn snyrtilegri. Gólf í bílskúr er málað.
Geymsla er inn af bílskúr og er þar milliloft sem nýtist sem geymslurými.
Bílaplan framan við hús er steypt og með snjóbræðslu (lokað kerfi). Þar er hægt að leggja þremur bílum. Rafmagnshleðslustöð er hægt að leigja eða kaupa af Orkusölunni.
Húsið er byggt 2007, en gólfefni, innihurðar og innréttingar eru frá 2016.

-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða [email protected]

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
 

RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
18. apr. 2023
53.300.000 kr.
73.500.000 kr.
180.5 m²
407.202 kr.
18. apr. 2016
15.200.000 kr.
13.500.000 kr.
180.5 m²
74.792 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
RE/MAX

RE/MAX

Skeifunni 17, 108 Reykjavík
phone