Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Víðir Arnar Kristjánsson
Árni Helgason
Vilborg Gunnarsdóttir
Ingunn Björg Sigurjónsdóttir
Vera Sigurðardóttir
Sjöfn Hilmarsdóttir
Vista
svg

29

svg

27  Skoðendur

svg

Skráð  12. feb. 2026

fjölbýlishús

Kveldúlfsgata 30 - íbúð 205

310 Borgarnes

51.000.000 kr.

850.000 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2540813

Fasteignamat

29.100.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
60 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta
Opið hús: 15. febrúar 2026 kl. 13:00 til 14:00

Opið hús: Kveldúlfsgata 30 - íbúð 205 , 310 Borgarnes, Íbúð merkt: 01 02 05. Eignin verður sýnd sunnudaginn 15. febrúar 2026 milli kl. 13:00 og kl. 14:00.

Lýsing

Domusnova kynnir Kveldúlfsgötu 30, virkilega vandað og vel skipulagt 15 íbúða fjöleignarhús á þremur hæðum, byggt með forsteyptum einingum frá Steypustöðinni. Húsið var einnig reist af kunnáttumönnum frá Steypustöðinni. Ál/tré gluggar frá Byko og hluti þeirra gólfsíðir. Sameiginlegur inngangur með mynddyrasíma. Lyfta í stigahúsi og er lýsing í stigahúsi tengd hreyfiskynjara/tímarofa. Allar íbúðir eru með aukinni lofthæð eða allt að þremur metrum, þær eru með sérsmíðuðum vönduðum innréttingum frá Voke-III, innréttingar lagðar að fullu upp í loft, borðplötur í eldhúsi eru úr steini, steinn í gluggakistum, eldhústæki frá AEG, harðparket á gólfi (utan 4ra herb. íbúða) og flísar í öllum votrýmum. Handklæðaofnar á baðherbergjum. Allar íbúðir skilast með hvítum innihurðum frá Parka og ljósum í öllum rýmum. Íbúðir skilast fullbúnar að innan og utan.

Íbúð 205 - MÖGULEIKI Á HLUTDEILDARLÁNI
Íbúðin er falleg og vel skipulögð 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með 6,4 fm. svölum.
Samtals er íbúðin er 60 fm, þar af er 4,0 fm geymsla innan íbúðar. Innan eignar eru anddyri, geymsla, alrými sem telur eldhús og stofu, eitt herbergi og baðherbergi þar sem einnig er þvottarými. Aukin lofthæð er í íbúðinni eða um 280 cm. Sameiginleg hjóla-og vagnageymsla.

Nánari lýsing:
Forstofa: Fataskápur frá Voke III. Harðparket á gólfi.
Geymsla: telur um 4,0 fm. Harðparket á gólfi.
Gangur: Harðparket á gólfi.
Eldhús: Vönduð sérsmíðuð ljós innrétting með ljúflokunarbúnaði á skúffum frá Voke-III með efri skápum og Quartz (Technostone) borðplötu. Vönduð raftæki frá AEG, veggofn, spanhelluborð, innbyggð uppþvottavél og innbyggður kæliskápur með frysti. Háfur með kolasíu Airforce. Eldhúsvaskur og blöndunartæki koma frá Voke-III. Harðparket á gólfi.
Stofa: Myndar rúmgott alrými með eldhúsi. Útgengt út á svalir. Harðparket á gólfi
Svefnherbergi: Fataskápur  að lofti með ljúflokunarbúnaði á skúffum frá Voke-III. Harðparket á gólfi.
Baðherbergi: Ljós innrétting. Speglaskápur yfir handlaug. Krómuð blöndunartæki frá Grohe. Upphengt salerni með hæglokandi setu, WALK IN sturta með glerskilrúmi og handklæðaofn. Aðstaða innan baðherbergis fyrir þvottavél og þurrkara. Flísar á gólfi og í sturtu.
Svalir:  6,4 fm sem snúa í norður með útiljósi og vatnsvörðum tengli.

Sameign/tæknirými: Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Rafmagnstöflur og rafmagnsmælar íbúða er staðsett í sameigninni.
Lóð/bílastæði: Lóðin er 1659,0 fm. Innan lóðar eru 15 bílastæði, að auki eru bílastæði í landi Borgarbyggðar sem íbúar geta notað. Lóðin verður afhent fullbúin í lok byggingartíma. Bílastæði við götu verða malbikuð. Megin gönguleiðir hellulagðar með snjóbræðslukerfi, aðrar gönguleiðir hellulagðar, steinsteyptar eða malbikaðar. Opin svæði verða frágengin með grasi og lággróðri. Frístandandi ruslaskýli með sorpflokkun.
 
** BÓKIÐ SKOÐUN - SÝNUM SAMDÆGURS **
Sjöfn Hilmarsdóttir, lgf., s. 691 4591 // [email protected]
Víðir Kristjáns., lgf s: 854 2226 // [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
  • Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone
    Domusnova fasteignasala

    Domusnova fasteignasala

    Hlíðasmári 4, 2. hæð, 201 Kópavogur
    phone