Opið hús: Ásakór 1, 203 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 04 03. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. febrúar 2026 milli kl. 17:30 og kl. 18:00.
Lýsing
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Stofan er rúmgóð með harðparketi á gólfi og þaðan er útgengt út á suðursvalir
Eldhúsið er með svartlakkaðri innréttingu. Inn af eldhúsi er þvottahús með innréttingu og flísar á gólfi.
Svefnherbergin þrjú eru öll með harðparketi á gólfi og fataskápum. Öll frekar rúmgóð.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með viðarinnréttingu og baðkari með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla íbúðar (7,8 fm) er á jarðhæð ásamt sameiginlegum rýmum hússins.
Bílskúrinn er 25,5 fm og er snyrtilegur með sjálfvirkum hurðaopnara.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða [email protected]
----------------------------------------------------------
Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat