Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Tinna Bryde
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
raðhús

Breiðvangur 39

220 Hafnarfjörður

134.900.000 kr.

786.589 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2074050

Fasteignamat

118.700.000 kr.

Brunabótamat

89.400.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1973
svg
171,5 m²
svg
6 herb.
svg
2 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt og vel skipulagt 5 herbergja endaraðhús með bílskúr og stórum, fallegum garði, teiknað af Kjartani Sveinssyni.  Mjög eftirsótt staðsetning í Norðurbæ Hafnarfjarðar nálægt allri helstu þjónustu. 

** 4 svefnherbergi
** Bílskúr með góðri geymslu
** Vinsæl staðsetning
** Gott viðhald


Nánari upplýsingar veita:
Hrafnkell Pálmarsson Lgf / MBA. í síma nr 660-1976 eða [email protected]
Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða [email protected]

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð skv. HMS er 171,5m2 þar af bílskúr 34,1m2.

Eignin skiptist í anddyri, borðstofu/stofu, eldhús, gang, 4 svefnherbergi, baðherbergi, gestasalerni, þvottahús og bílskúr.

Nánari lýsing:
Anddyri er með góðum fataskáp og múrsteinsklæðningu á veggjum. Flísar á gólfi.
Svefnherbergi I er inn af anddyri með fataskáp. Parket á gólfi.
Gestasalerni er inn af anddyri með upphengdu salerni og handlaug. Flísalagt í hólf og gólf.
Stofa/borðstofa er rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu og útgengi á viðarverönd. Parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri- og viðarinnréttingu, flísum á milli skápa, bakaraofni, helluborði og viftu. Stæði fyrir uppþvottavél og borðkrókur. Parket á gólfi.
Þvottahús er inn af eldhúsi með hvítri innréttingu, með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Búr inn af þvottahúsi. Flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi II er með parket á gólfi.
Svefnherbergi III er með parket á gólfi.
Svefnherbergi IV er góðum fataskáp og útgengi á viðarverönd. Parket á gólfi.
Baðherbergi endurnýjað 2014 með dökkri innréttingu, handlaug, upphengdu salerni, "walk-in" sturtu og handklæðaofni. Opnanlegur gluggi. Flísalagt í hólf og gólf.
Bílskúr er 34,1m2, lakkað gólf, rafdrifin bílskúrshurð. Inn af bílskúr er geymsla. 
Garðurinn er gróinn með viðarverönd fyrir aftan hús. Innkeyrsla og verönd fyrir framan hús eru hellulagðar.

Framkvæmdir síðustu ár
2014 Baðherbergi endurnýjað
2019 Þakjárn og þakpappi endurnýjað
2020 Skipt um þrýstijafnara
2023 Skipt um ofna og parket í stofu
2025 Gler endurnýjað að hluta að sunnanverðu

Breiðvangur 39 er afar falleg og vel skipulögð eign á vinsælum stað í Norðurbænum þar sem sambærilegar eignir koma sjaldan í sölu. Nálægt allri helstu þjónustu ss. leiksskólum, skóla og verslun. 

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík