Upplýsingar
Byggt 1965
148,4 m²
5 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 17. febrúar 2026
kl. 17:00
til 17:30
Opið hús: Álfaskeið 82, 220 Hafnarfjörður, Íbúð merkt: 01 02 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Tinna Bryde, löggiltur fasteignasali, og Háborg fasteignasala kynna:
Rúmgóða og einstaklega bjarta 4–5 herbergja endaíbúð á annarri hæð með bílskúr við Álfaskeið 82 í Hafnarfirði.
Um er að ræða vel skipulagða endaíbúð í vönduðu fjölbýlishúsi sem teiknað er af Kjartani Sveinssyni. Íbúðin er með þrjú svefnherbergi í dag, en auðvelt er að bæta við fjórða herberginu. Stofur eru rúmgóðar, gluggar stórir og birtan mjög góð – með gluggum í þrjár áttir. Íbúðinni fylgja suð-vestur svalir, rúmgott eldhús, þvottahús og búr inn af eldhúsi, ásamt bílskúr.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Tinna Bryde Lgf. í síma 660-5532 eða [email protected]
Íbúðin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 147,5 fm, þar af er geymsla 7,5 fm og bílskúr 23,7 fm.
Húsið skiptist í tvo stigaganga (nr. 82 og 84) með tíu íbúðum í hvorum hluta.
Nánari lýsing
Forstofa / anddyri Forstofa er rúmgóð með parketi á gólfi og fataskáp.
Stofa og borðstofa Stofa og borðstofa eru mjög rúmgóðar og bjartar með parketi á gólfi. Útgengt er út á suð-vestursvalir.
Auka herbergi Opið rými tengist stofunni sem auðvelt er að loka af og útbúa þar fjórða svefnherbergið eða skrifstofu.
Eldhús Eldhús er rúmgott með fallegri tekkinnréttingu, ofni og parketi á gólfi. Gott vinnupláss og skápapláss.
Þvottahús og búr Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús með glugga og búr – afar hentugt rými sem bætir verulega við daglegt notagildi íbúðarinnar.
Svefnherbergi Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum og dúk á gólfi.
Svefnherbergi II með fataskáp og dúk á gólfi.
Svefnherbergi III með fataskáp og parketi á gólfi. Athugið: Mynd af herbergi hefur verið unnin með aðstoð gervigreindar í þeim tilgangi að sýna mögulega uppsetningu og nýtingarmöguleika.
Baðherbergi Baðherbergi er með baðkari og sturtuaðstöðu, innréttingu og glugga. Gólf er flísalagt og veggir flísalagðir að hluta.
Bílskúr, geymsla og sameign
Bílskúr með rafmagnshurðaopnara, auk hefðbundinnar bílskúrshurðar.
Sérgeymsla í kjallara hússins.
Vagna- og hjólageymsla í sameign með útgengi út á bílaplan.
Viðhald og endurbætur (helstu atriði)
Gluggar og gler:
Nýr gluggi og gler í borðstofu 2018.
Gluggar og gler endurnýjuð að austur-/framhlið 2020.
Gluggar endurnýjaðir að suður- og vesturhlið og svalahurð endurnýjuð 2023.
Skilrúm milli svala endurnýjuð 2025.
Gluggar í sameign einnig endurnýjaðir.
Hús:
Húsið var múrviðgert og málað 2023
Frárennslislagnir:
Allar lagnir undir húsinu endurnýjaðar.
Árið 2020 voru allar lagnir myndaðar og fóðraðar að innan, alveg út í götu.
Þak:
Yfirfarið og málað 2018–2019.
Rafmagn:
Ný rafmagnstafla í sameign 2026
Staðsetning
Álfaskeið er afar eftirsótt fjölskylduvæn gata í miðbæjarhverfi Hafnarfjarðar. Grunn- og leikskólar eru í stuttu göngufæri, auk fjölbreyttrar verslunar og þjónustu í næsta nágrenni. Stutt er á íþróttasvæði FH í Kaplakrika í gegnum undirgöng undir Fjarðarhraun og fimleikahús Bjarkar er einnig í þægilegu göngufæri.