Lýsing
Íbúðin er björt og vel skipulögð með tvennum rúmgóðum svölum sem snúa í suður. Aðrar svalirnar eru stórar þaksvalir þar sem möguleiki er á að koma fyrir heitum potti. Útsýnið er einstaklega fallegt til suðurs, bæði til fjalla og út á sjó.
Aukin lofthæð eða ca. 2,65 metrar.
Íbúðinni fylgir mjög stór bílskúr með sér bílastæði fyrir framan inni í lokuðu bílastæðahúsi.
Búið er að greiða fyrir leyfi og samþykktar teikningar vegna svalalokunar.
Íbúðin er skráð alls 169,7 fm hjá HMS, þar af er bílskúr 48,7 fm og geymsla 11,6 fm.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020, eða með tölvupósti á [email protected].
Nánari lýsing eignar
Þegar komið er upp á fjórðu og efstu hæð er gengið út á rúmgóðan svalagang sem tilheyrir einungis þessari íbúð, með fallegu útsýni yfir sameiginlegan garð.
Forstofa er rúmgóð, með flísalögðu gólfi og yfirhafnaskáp.
Úr forstofunni er gengið beint út á glæsilegar 37,4 fm þaksvalir, þar sem hægt er að koma fyrir heitum potti. Búið er að loka svölunum til norðurs með gleri til að skapa enn betra skjól.
Stofa og eldhús eru í opnu, björtu rými. Eldhúsið er með hvítum innréttingum og eyju. Úr rýminu er útgengt á mjög skjólgóðar suðursvalir með viðhaldslitlum stiklum á gólfi, og liggja fyrir greidd leyfi og samþykktar teikningar vegna svalalokunar.
Þrjú rúmgóð svefnherbergi (10,7-13-13,4 fm), öll með fataskápum upp í loft.
Baðherbergið er flísalagt með sturtu, ljósri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni. Yfir handlaug er speglaskápur með baklýsingu.
Sér þvottahús með flísum á gólfi er innan íbúðarinnar með plássi fyrir þvottavél og þurrkara. Vaskur og snúrur.
Gólfefni eru flísar og harðparket. Innbyggð ljós og veggljós fylgja.
Eigninni fylgir mjög rúmgóður upphitaður bílskúr í bílageymslunni, 48,7 fm, með stálvaski.
Geymsla (11,6 fm) er staðsett innst í bílskúrnum.
Auk þess fylgir mjög rúmgott einkabílastæði staðsett beint fyrir framan bílskúr nr. B21 í bílageymslunni. Stæðið er mjög vel staðsett nálægt inngangi inn í stigagang.
Í miðju húsasamstæðunnar er stór og vel hirtur sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn, skjólgóður og fullkominn fyrir fjölskyldufólk.
Stutt lýsing húss:
Hlíðarfótur 19 er stórglæsilegt 20 íbúða fjölbýlishús á fjórum og fimm hæðum með 3ja og 4ra herbergja íbúðum. Byggingaraðili er Dalhús ehf., byggingarfélag með áratuga reynslu í byggingu íbúða.
* Vandaðar Nobilia innréttingar frá GKS innréttingum, hvítar, svartar eða gráar
* Raftæki í eldhúsi eru frá AEG. Innbyggður ísskápur m. frysti, spanhelluborð í eyju og háfur, veggofn og örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél.
* Blöndunartækin eru frá Tengi en svört blöndunartæki frá GKS.
* Yfirfelldar eikarhurðir og hvítir sólbekkir
* Hvítir fataskápar frá Parka
* Mynddyrasímakerfi
* KR Ark sá um alla hönnun
Bílastæðahús og bílskúrar:
Bílageymsla er lokuð og upphituð (frostfrí) með loftræstingu. Allar íbúðir eru með bílastæði í bílastæðahúsi.
Ytri frágangur og lóð:
Þak er steinsteypt, með ásoðnum tjörupappa, einangrað með þrýstieinangrun (Roofmate) og möl er lögð þar ofaná. Frágengin niðurföll. Húsið er einangrað að utan og klætt með álklæðningu.
Um svæðið og nærliggjandi umhverfi:
Miðbærinn er í göngufæri og því yndislegt að fá sér stuttan göngutúr á veitingahús, söfn, tónleika, sund eða niður á Tjörn. Íþróttaaðstaða Vals er við Hlíðarenda svæðið því stutt að fara fyrir börn og unglinga sem búa á svæðinu. Gönguleiðir um Öskjuhlíðina, Nauthólsvík og fleira.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali, í síma 896-6020, eða með tölvupósti á [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.