Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1947
svg
117,8 m²
svg
4 herb.
svg
2 svefnh.
Opið hús: 19. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Mávahlíð 11, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 101. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 19. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Elka Guðmundsdóttir lgf. s. 863-8813 hjá Fasteignasölunni TORG kynnir gullfallega 117,8 m² sérhæð með sérinngangi sem hefur verið mikið endurnýjuð.
Íbúðin skiptist í tvö rúmgóð svefnherbergi, nýlegt eldhús sem er opið inní stofu, endurnýjað rúmgott baðherbergi, gott þvottahús innan íbúðar með glugga, sér geymsla í kjallara og steypt bílaplan fyrir aftan hús.
Um er að ræða afar vel skipulagða íbúð í fjögurra íbúða húsi á vinsælum stað við Mávahlíð. Eignin er með sérinngangi og hefur fengið umtalsverðar endurbætur á síðustu árum.
Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús fimmtudaginn 19. febrúar kl. 17.00
Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur [email protected].

Nánari lýsing;
Gengið er upp tröppur að sérinngangi. Forstofa er flísalögð með fallegum flísum og þaðan er aðgengi niður í sameign.
Við hlið forstofu er rúmgott herbergi sem nýtist vel sem skrifstofa, barnaherbergi eða gestaherbergi.
Frá forstofu er komið inn í miðrými sem tengir önnur rými íbúðarinnar. 
Íbúðin hefur verið endurskipulögð þannig að eldhús er nú hluti af stofurými og myndar opið og bjart alrými. Í fyrra eldhúsrými hefur verið útbúið baðherbergi og fyrra baðherbergi nýtt sem þvottahús innan íbúðar.
Nýleg eldhúsinnrétting í alrými með innbyggðum ísskáp og uppþvottavél. Spanhelluborð með innbyggðri viftu í eyju, nýlegur bakarofn, nýlegur vaskur og blöndunartæki. Kvartssteinn á borðplötum og eyju. Lýsing endurnýjuð.  Útgengi úr eldhúsi á suðursvalir.
Baðherbergi er rúmgott og bjart og hefur verið gert upp frá grunni þar sem áður var eldhús.  Flísalagt gólf og veggir, „Walk-in“ sturta, frístandandi baðkar og vegghengt salerni. Innbyggð blöndunartæki við vask, baðkar og sturtu. Kvartssteinn á borði og í gluggasyllu.  
Fyrrum baðherbergi hefur verið breytt í þvottahús. Flísalagt gólf, innrétting og gott vinnupláss. Vélar í vinnuhæð og innbyggður frystiskápur.  Gluggi gefur fallega birtu inní rýmið.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott með góðu skápaplássi eftir endilöngum vegg.
Hiti er í öllum gólfum íbúðar og hitastillir í hverju rými.

Húsið er steinsteypt fjögurra íbúða hús sem hefur fengið reglulegt viðhald í gegnum tíðina. Hiti í tröppum, bílaplani og gönguleið meðfram húsi. Frárennslislagnir hafa verið fóðraðar og heimtaugar endurnýjaðar. Í sameign er þvottahús og sér geymsla íbúðar, 4,7 m² að stærð, aðgengi beint úr geymslu að bílastæði á bakvið húsið.  Íbúð endurnýjuð haustið 2021.
Lóð er mjög snyrtileg. Snjóbræðsla er í bílastæði og að hluta í gönguleiðum og í tröppum. Stórt bílaplan fyrir aftan húsið fylgir tveimur íbúðum 1. og 2. hæðar.

Meðal helstu endurbóta í lok árs 2021 samkvæmt seljendum eru:
- Allar vatns- og raflagnir í íbúð endurnýjaðar
- Nýjar frárennslislagnir frá íbúð.
- Nýr þrýstijafnari í lagnarými fyrir íbúðina.
- Öll gólf flotuð og gólfhiti lagður í öll rými, með hitastillum í rýmum
- Gólfefni endurnýjuð, m.a. eikarparket í alrými og svefnherbergjum
- Forstofa flísalögð með fallegum flísum sem fellur vel að aldri og stíl hússins.

Virkilega falleg og mikið endurnýjuð sérhæð á þessum vinsælum stað í grónu hverfi. Eign þar sem farið hefur verið í umfangsmiklar endurbætur ásamt uppfærðu skipulagi.
Eign sem vert er að skoða.

Nánari upplýsingar veitir Elka Guðmundsdóttir Fasteignasali, í síma 863-8813, tölvupóstur [email protected].


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Elka Guðmundsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
11. mar. 2021
56.650.000 kr.
58.500.000 kr.
117.8 m²
496.604 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Elka Guðmundsdóttir

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ