Opið hús: Njálsgata 108, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 17. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Birt stærð eignar samkvæmt HMS er 56 fm þar af er geymsla í risi 1,6 m2. Eignin skiptist í hol, stofu / borðstofu, eldhús, svalir, 2 svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:
Hol er með parket á gólfi.
Stofa / borðstofa er parket á gólfi.
Eldhús er með hvítri innréttingu, helluborði, bakaraofn og ísskáp sem fylgir með. Útgengt út á suður svalir.
Baðherbergi er flísalagt með upphengdu wc, sturtu, spegli og handlaug með skáp.
Svefnherbergi 1 er parket á gólfi með fataskáp.
Svefnherbergi 2 er með parket a gólfi og fataskáp.
Sérgeymsla er í risi. Hún er að nokkrum hluta hluta undir súð og er því stærri að gólffleti.
Sameiginlegt þvottahús í kjallara þar sem hver íbúð er með sínar vélar.
Sameiginlegur skjólgóður garður.
Iðandi mannlíf í miðborg Reykjavíkur allt í kring. Veitingastaðir, kaffihús og Hlemmur Mathöll, Stutt í Klambratún og fallegar gönguleiðir, leik og grunnskóla.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á [email protected] eða hjá Kristjáni Baldurssyni með tölvupósti á [email protected].
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.