Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1951
81,8 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Laus strax
Lýsing
Fasteignasalan TORG kynnir: Falleg og björt íbúð á jarðhæð með sérinngangi miðsvæðis í Höfuðborginni. Um er að ræða eign í fjórbýlishúsi sem er skráð skv fmr 81,8fm og skiptist eftirfarandi: Forstofa, tvö svefnherbergi, stofa, eldhús, baðherbergi, geymsla og sameiginlegt þvottahús með einni íbúð. Árið 2015 var þakjárn endurnýjað, 2014 voru gluggar og gler endurnýjaðir og opnað fyrir svalahurð í stofu. Árið 2019 var húsið múrviðgert og málað að utan, 2020 var settur nýr þrýstijafnari á vatnskerfið, 2021 var drenað við íbúðina og 2022 voru herbergisgólf flotuð. Þetta er eftirsótt staðsetning þar sem örstutt er í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]
Nánari lýsing: Forstofa: komið er inn um sérinngang inn í forstofu með flísum á gólfi og fatahengi.
Stofa: stofa eignarinnar er björt og rúmar einnig borðstofu. Flísar eru á gólfi og útgengt er út í garð frá stofu þar sem mögulegt er að setja verönd/sólpall.
Eldhús: Eldhús eignarinnar er fallegt með ljósri innréttingu. Tengi er fyrir litla uppþvottavél og háfur er yfir eldavél með keramikhelluborði. Rúmgóður borðkrókur og tveir gluggar eru á eldhúsinu.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með baðkari með sturtuaðstöðu. Salerni er upphengt, skápur er undir vaski, handklæðaofn og opnanlegur gluggi.
Svefnherbergi: Herbergin eru tvö, bæði rúmgóð með harðparketi á gólfi, fatahengi er í öðru og laus skápur í hinu sem geta fylgt með.
Geymsla: innan íbúðar er geymsla með flísum á gólfi og opnanlegum glugga.
Þvottahús: innaf forstofu er gengið inní sameigninlegt þvottahús með einni íbúð. Pláss er fyrir þvottavél og þurrkara og smá geymslurými.
Niðurlag: Þetta er björt og falleg íbúð miðsvæðis í borginni þar sem stutt er í alla þjónustu. Allar nánari upplýsingar veitir Hafdís Rafnsdóttir löggiltur fasteignasali gsm 820-2222 eða [email protected]

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
28. jún. 2013
19.350.000 kr.
25.300.000 kr.
81.8 m²
309.291 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026