Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Kristján Baldursson
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Sólveig Regína Biard
Kristín María Stefánsdóttir
Viktoría Rannveig Larsen
Aðalsteinn Jón Bergdal
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Vista
fjölbýlishús

Kötlufell 3

111 Reykjavík

49.500.000 kr.

771.028 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2052638

Fasteignamat

44.650.000 kr.

Brunabótamat

32.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1974
svg
64,2 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 23. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Kötlufell 3, 111 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 04 02. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson, löggiltur fasteignsali kynna í einkasölu bjarta og fallega 2ja herbergja íbúð á 4. hæð við Kötlufell 3 í Reykjavík. Frábær staðsetning þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, leikskóla, matvörubúð og sundlaug. EIGNIN ER LAUS TIL AFHENDINGAR VIÐ KAUPSAMNING.

Eignin er skráð 64,2 fm hjá HMS, þar af er 6,2 fm geymsla á jarðhæð, yfirbyggðar svalir eru ekki inni í skráðum fermetrum. Eigninni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu og þvottaaðstaða.

Nánari lýsing:

Forstofa með fatahengi, dúkur á gólfi.
Eldhús með hvítri innréttingu, bakaraofn, helluborði og gufugleypi. Tengi fyrir uppþvottavél og dúkur á gólfi.
Stofa og borðstofa í samliggjandi opnu rými, dúkur á gólfi og yfirbyggðar svalir hluti af stofunni. 
Svefnherbergi, rúmgott með góðum fataskápum, dúkur á gólfi.
Baðherbergi með hvít innréttingu, baðkar með sturtuaðstöðu, tengi fyrir þvottavél. 
Sérgeymsla á jarðhæð (6,2 fm).

Hér er góð eigna á ferðinni sem hentar vel sem fyrstu kaup. Sjón er sögu ríkari, allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða með tölvupósti á [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 

Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

img
Hallgrímur Óli Hólmsteinsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Trausti fasteignasala
Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone
img

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
Trausti fasteignasala

Trausti fasteignasala

Vegmúla 4, 108 Reykjavík
phone

Hallgrímur Óli Hólmsteinsson

Vegmúla 4, 108 Reykjavík