Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1981
177,6 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Útsýni
Opið hús: 20. febrúar 2026
kl. 13:00
til 13:45
Lýsing
Hvammshlíð 3 e.h. - Snyrtileg 5 herbergja efri hæð í tvíbýli með sambyggðum bílskúr í Glerárhverfi - stærð 177,6 m² þar af bílskúr 34,2 m²
Eignin skiptist í forstofu, stofu, sjónvarpshol, eldhús, baðherbergi, fjögur svefnherbergi, þvottahús og bílskúr.
Í forstofu eru flísar á gólfi, spónlagður eikarskápur og skúffueining.
Stofa er rúmgóð, með parketi á gólfi og uppteknum loftum.
Sjónvarpshol er með parketi á gólfi og þaðan er hægt að ganga út á steyptar og flísalagðar suður svalir, með fallegu útsýni.
Í eldhúsi er spónlögð eikar innrétting með svartri granít bekkplötu og mósaík flísum á milli skápa. Í borðkrók er eldhúsborð og bekkur í stíl við innréttinguna sem fylgir með við sölu. Stæði fyrir tvöfaldan ísskáp er í innréttingu en innfelld uppþvottavél fylgir með við sölu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, spónlagðri eikar innréttingu og opnanlegum glugga. Þar er sturta og handklæðaofn.
Svefnherbergin eru fjögur. Parket er á gólfum í þeim öllum og spónlagðir eikar fataskápar í þremur þeirra.
Þvottahús er með flísum á gólfi, spónlagðri eikar innréttingu og svörtum flísum milli skápa, skolvask og stæði fyrir þvottavél og þurrkara.
Bílskúr er með flísum á gólfi og ágætri innréttingu með efri og neðri skápum og vaska.
Annað:
- Geymsluskúr er á lóðinni
- Hiti er í gólfi í eldhúsi, baðherbergi, þvottahúsi og forstofu.
- Snjóbræðsla er í steyptu bílaplani og stéttum fyrir framan húsið, lokað kerfi.
- Stutt í leikskóla, grunnskóla og íþróttasvæði Þórs
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. júl. 2018
33.400.000 kr.
50.500.000 kr.
177.6 m²
284.347 kr.
24. nóv. 2015
28.850.000 kr.
43.000.000 kr.
177.6 m²
242.117 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026