Upplýsingar
Byggt 1949
125,8 m²
4 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Þórunnarstræti 103 - 101
Snyrtileg 4-5 herbergja hæð miðsvæðis á Akureyri. Eignin er samtals 125,8m2 með sérinngangi á austurhlið hússins. Einnig er sameigninlegur inngangur á norðurhlið hússins í kjallara.
Eignin skiptist í:
Forstofu, hol, tvö svefnherbergi ( auðvelt að breyta í þrjú, búið að taka vegg milli herbergja til að stækka), borðstofa ( Sem auðvelt er að breyta í herbergi), stofa eldhús, baðherbergi, geymsla og sameiginlegt þvottahús.
Forstofa þar eru ljósar flísar á gólfi með hitalögn undir, fataskápur, úr forstofu er hurð í sameign í kajllara.
Hol er mjög rúmgott og gæti nýst sem sjónvarpsrými með parketi á gólfi.
Stofa og borðstofa með parketi á gólfi, mjög fallegum gluggum til tveggja átta hurð úr borðstofu út á svalir til suðurs. Sem væri auðvelt að breyta í mjög rúmgott herbergi.
Eldhús er með fallegri hvítri innréttingu með dökkri borðplötu, ljósar flísar á milli efri og neðri skápa einnig við glugga, harðparket á gólfi, pláss er fyrir eldhúsborð.
Svefnherbergi er mjög rúmgott með tveimur gluggum, harðparketi á gólfi, stórum hvítum fataskáp með skúffum og einnig er eining með skúffum.
Svefnherbergi sem er mjög rúmgott með þremur gluggum, plastparketi á gólfi og fataskáp. ( Veggur sem skipti þessu herbergi í tvö var tekinn, auðvelt að breyta til baka)
Baðherbergi er flísalagt gólf og veggir, baðkar með sturtuaðstöðu, handklæðaofn, innrétting sem er ljós/viður. Opnanlegur gluggi.
Í kjallara sem er flísalagður er sameiginlegur inngangur, sérgeymsla og sameignlegt þvottahús.
Geymsluskúr á lóð er sameiginlegur fyrir allt húsið byggður árið 2020
Annað:
- Skolplagnir endurnýjaðar undir húsi og út í götu árið 2009
- Skorsteinn fjarlægður og þak lagað í kringum sárið árið 2025
- Gólfhiti í forstofu.
- Mjög skemmtileg staðsetning miðsvæðis á Akureyri.
- Eldhús hefur verið endurnýjað.
- Rafmagnstafla endurnýjuð.
- Eignin er í einkasölu á FS fasteignir.
Viðhald á húsi:
1999: Einhverjar lóðaframkvæmdir, meðal annars drenlögn í kringum húsið að sögn eiganda
2009: Klóaklögn undir húsinu endurnýjuð
2025: Skorsteinn fjarlægður og þak lagað í kringum sárið