Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1991
162,3 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Laus strax
Opið hús: 22. febrúar 2026
kl. 15:00
til 15:30
Opið hús: Bæjargil 30, 210 Garðabær. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. febrúar 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Virkilega vel skipulagt og mikið endurnýjað raðhús á fjölskylduvænum og eftirsóttum stað í Garðabæ. Eignin er skráð 162,3 fm. og er á tveim hæðum með fjórum svefnherbergjum á efri hæð, baðherbergi og þaksvölum út frá hjónaherbergi. Á neðri hæðinni er rúmgott alrými, eldhús, þvottahús, gestasalerni og bílskúr sem búið er að breyta í herbergi. Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum þar með talið öll gólfefni, eldhús og bæði baðherbergin. Þá er búið að leggja gólfhita á alla neðri hæðina, fyrir utan bílskúr og komnir nýjir ofnar á efri hæð. Frá stofurými er útgengt út á stóra timburverönd með heitum og köldum potti, sturtu og tveimur geymsluskúrum, annar upphitaður. Nýlega var skipt um járn á þaki hússins og það málað að utan. Örstutt er í alla helstu þjónustu m.a. verslanir, leik-, grunn- og fjölbrautaskóla og miðbæjarlíf Garðabæjar.Allar nánari upplýsingar veitir Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða [email protected]
Nánari lýsing eignar;
Gengið er upp að húsinu um fallega hellulagða stétt með snjóbræðslu sem nýlega var endurnýjuð og bílastæði stækkuð fyrir þrjá bíla.
Fyrsta hæð:
Forstofa: Gengið er inn í húsið á neðri hæð. Komið er inn í rúmgóða forstofu með fallegum gráum flísum á gólfi og fataskáp og skóskápum. Innangengt er bæði í þvottaherbergið, bílskúrinn(herbergi) og gestasalernið frá forstofunni.
Gestasalerni: Gestasalerni er inn af forstofunni. Það er endurnýjað með fallegum gráum flísum á gólfi og upp á vegg hjá upphengdu salerninu.
Þvottaherbergi: Við hlið gestasalernisins inn af forstofunni er mjög gott flísalagt þvottaherbergi með góðri innréttingu, góðu vinnuborði og vaski. Gengið er í gegnum þvottaherbergið til að komast í bílskúrinn. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara
Bílskúr: Bílskúrinn er flísalagður. Bæði er hægt að ganga inn í bílskúrinn að utan um inngönguhurð og einnig inn úr þvottaherberginu. Þar er búið að útbúa sjónvarps og vinnuherbergi ásamt rúmgóðum geymsluskáp.
Eldhúsið er endurnýjað með fallegri hvítri sérsmíðaðri innréttingu og fallegum ljósgráum stein á borðum. Einkar mikið skápapláss er í innréttingunni. Á öðrum veggnum eru tveir tvöfaldir tækjaskápar sem ná upp í loft, tveimur ofnum í vinnuhæð og gott pláss er fyrir tvöfaldan ísskáp. Á móti eru neðriskápar, vaskur, 80 cm spanhelluboð og fallegur háfur á vegg.
Stofan og borðstofan eru saman í opnu rými með fallegu nýlegu harðparketi á gólfi. Frá stofurýminu er útgengt á stóra timburverönd með skjólveggjum. Þar eru tveir geymsluskúrar, annar er upphitaður. Á veröndinni eru heitur og kaldur pottur frá Trefjum ásamt sturtu og sturtuklefa
Efrihæð:
Baðherbergið er hið glæsilegasta, allt nýlega endurnýjað með stórum sturtuklefa, upphengdu salerni, innbyggð tæki og innbyggður handklæðaofn. Innréttingin er falleg hvít með góðu skápaplássi.
Hjónaherbergi: Hjónaherbergið er rúmgott með nýju harðparketi á gólfi og góðum nýlegum fataskáp með rennihurðum. Útgengi er á stórar svalir sem ná sólaráttinni í norður, austur og suður. Búið að leggja dúk á svalagólf og klæða með plastflísum.
Barnaherbergin eru þrjú öll sérlega rúmgóð þar sem hluti herbergja er undir súð þá verðum rýmið mun stærra. Nýtt harðparket á gólfum allra herbergja. Góðir fataskápar eru í tveimur barnaherbergjum.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign)
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.
Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali.
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
1. feb. 2023
108.500.000 kr.
122.000.000 kr.
162.3 m²
751.694 kr.
6. nóv. 2020
68.000.000 kr.
90.000.000 kr.
162.3 m²
554.529 kr.
21. jún. 2011
33.000.000 kr.
39.000.000 kr.
162.3 m²
240.296 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026