Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2020
70,7 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Sameiginl. inngangur
Bílastæði
Lyfta
Opið hús: 24. febrúar 2026
kl. 17:30
til 18:00
Lýsing
Borg fasteignasala kynnir glæsilega og vel skipulagða 70,7 fm, 3ja herbergja íbúð við Nýbýlavegur 10A - Efsta hæð
200 Kópavogi.
Staðsetning íbúðarinnar á 5. hæð gefur eigninni einstakt yfirbragð – aukið næði, fallegt útsýni og betri birtuskilyrði en almennt gerist.
Íbúðinni fylgir stæði í bílageymslu merkt B01.
Nánari lýsing:
Eldhús er vel búið með góðu vinnuplássi og miklu skápaplássi. Vönduð tæki – helluborð, blástursofn og gufugleypir – setja fallegan svip á rýmið. Eldhús og stofa eru í opnu og björtu alrými sem skapar skemmtilegt og notalegt samverusvæði. Úr stofu er útgengt á rúmgóðar norðursvalir.
Baðherbergi er vel búið með upphengdu salerni, veglegri sturtu og fallegri innréttingu. Gert er ráð fyrir þvottavél og þurrkara í innréttingu. Flísar eru á gólfi og upp á veggi.
Hjónaherbergi er mjög rúmgott og bjart, með góðu skápaplássi og fallegu útsýni.
Vinnuherbergi/barnaherbergi er minna en bjart, með góðu útsýni til norðurs og ágætu skápaplássi.
Um er að ræða bjarta og fallega íbúð á 5. hæð í lyftuhúsi. Íbúðin er skráð 70,7 fm, þar af er sérgeymsla 7,8 fm. Frá stofu er gengið út á 6,1 fm norðursvalir sem bjóða upp á notalegt útirými og fallegt útsýni til vesturs.
Hér er um að ræða sérlega fallega og vel staðsetta eign sem hentar vel einstaklingum, pörum sem eru að hefja búskap eða þeim sem vilja minnka við sig.
Um húsið:
Nýbýlavegur 10A og 10B samanstanda af tveimur stigahúsum með samtals 47 íbúðum. Lyfta er í báðum stigahúsum. Húsið er sex hæðir; á fyrstu hæð er efri bílageymsla ásamt verslunarrými en íbúðir eru staðsettar á 2.–6. hæð.
Frágangur hússins er vandaður; það er einangrað að utan og klætt álklæðningu. Sameign er rúmgóð og björt. Gott útsýni er frá mörgum íbúðum, sérstaklega á efri hæðum.
Byggingaraðili er JÁ-Verk ehf.
Nánari upplýsingar veitir Héðinn Birnir Ásbjörnsson Lögg. fasteignasali, í síma 848 4806, tölvupóstur [email protected].
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,4% fyrstu kaup, 0,8% síðari kaup, 1,6% lögaðilar. Prósentan er af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði
Með undirritun sinni á þetta söluyfirlit staðfestir seljandi/seljendur að efni þess sé rétt samkvæmt hans/þeirra bestu vitund. Kaupandi/kaupendur staðfestir/staðfesta með áritun sinni á þetta söluyfirlit að hann/þeir/þau hafi kynnt sér efni þess.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
12. jan. 2021
30.500.000 kr.
47.900.000 kr.
70.7 m²
677.511 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026