Lýsing
Miklaborg og Böddi kynna:
Glæsileg og mikið endurnýjuð tveggja herbergja íbúð með miklu útsýni og sérstæði í bílakjallara í 110 Reykjavík. Hér er í boði einstaklega vel skipulögð og mikið endurnýjuð tveggja herbergja íbúð á eftirsóttum stað í 110 Reykjavík – með frábæru útsýni og sérstæði í lokaðri bílageymslu.
Samkvæmt skráningu HMS er heildarstærð eignarinnar 79,4 fm, þar af er íbúðin 57,6 fm og sérmerkt stæði í bílageymslu 21,8 fm.
Íbúðin er á efstu hæð (3 hæðir upp) í steinsteyptu fjölbýlishúsi frá 1985. Bílageymslan er byggð 1992 og stendur við hlið hússins.
Nánari Uppl: Böddi Lgf. S: 8216300 - [email protected]
Nánari lýsing :
Forstofa – Komið er inn í flísalagða forstofu með fataskáp
Eldhús: Falleg innrétting, gott skápapláss, spanhelluborð og vönduð tæki, parket.
Stofa: Björt og opin stofa með parketi á gólfum og út gengt er á skjólgóðar svalir þar sem útsýnið nýtur sín virkilega.
Svefnherbergið er rúmgott og mjög snyrtilegt með góðu skápaplássi og parketi á gólfum.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf með nýlegri innréttingu og baðkari sem er með sturtuaðstöðu.
Á hæðinni er: Sér geymsla íbúðar og sameiginlegt og mjög aðgengilegt þvottahús.
Á jarðhæð er svo snyrtileg vagna- og hjólageymsla.
2019 Harðparket var lagt á alla íbúðina. Eldhúsinnrétting var endurnýjuð. Ofn í stofu var endurnýjaður. Fataskápur í svefnherbergi var endurnýjaður. Rafmagnstenglar uppfærðir.
Að utan: múrviðgerðir á svölum, svalir og gluggar málaðir, gler endurnýjað eftir þörfum
2023: Skipt um inngangshurð íbúðar
2024: Baðinnrétting og salerni endurnýjuð. Ofnar í svefnherbergi og baðherbergi og dyrasímakerfi hússins eru endurnýjað. Húsið er klætt að utan og lítur vel út. Sameignin er snyrtileg og vel um gengin.
Það sem skiptir máli: Sérstæði í lokaðri bílageymslu (21,8 fm). Ljósleiðari kominn inn. Hiti í gönguleiðum og í bílaramp á gróinni og fallegri lóð.
Staðsetningin: Stutt í skóla, sundlaug, líkamsrækt og fallegar gönguleiðir í náttúrunni.
mjög flott eign sem hefur verið hugsað vel um.
Nánari uppl: Böddi Lgf. S: 8216300 - [email protected]