Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
einbýlishús

Arnartangi 29

270 Mosfellsbær

136.700.000 kr.

784.730 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2082676

Fasteignamat

120.100.000 kr.

Brunabótamat

87.450.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1975
svg
174,2 m²
svg
5 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur
Opið hús: 23. febrúar 2026 kl. 16:30 til 17:00

Opið hús: Arnartangi 29, 270 Mosfellsbær. Eignin verður sýnd mánudaginn 23. febrúar 2026 milli kl. 16:30 og kl. 17:00.

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 23.febrúar frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Vel skipulagt 174,2 m2 einbýlishús með bílskúr við Arnartanga 29 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 174,2 en þar af íbúð 138,6 m2 og bílskúr 35,6 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, gestasnyrtingu, þvottahús og bílskúr. Stór garður með timburverönd, hellulagðri verönd og heitum potti. Húsið er vel staðsett í vinsælu og grónu hverfi í Mosfellsbæ, stutt frá skóla, leikskóla, verslun og allri helstu þjónustu. 


Skv. upplýsingum frá seljanda er verið að ljúka endurbótum og þaki og þakkanti. Verðum þeim lokið fyrir afhendingu. Einnig verður klárað að skipta um gler í tveimur gluggum á suðvestur hlið hússins og í sjónvarpsholi ásamt því að ljúka lagningu gólflista. Árið 2017 var eldhús og gestasnyrting tekið í gegn. Árið 2018 voru innihurðir og rafmagnstafla endurnýjuð. 

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax

Nánari lýsing:
Forstofa
er með flísum á gólfi og fatahengi. Gengið er úr forstofu og inn á gang með góðum fataskáp og krók sem er í dag nýtt sem skrifborðsaðstaða.
Gestasnyrting er með hydrocork á gólfi, vegghengdu salerni og hvítri innréttingu.
Stofan er björt með gegnheilu eikarparketi á gólfi, úr stofu er útgengt út á hellulagða verönd til suðurs með steyptum potti. Búið er að taka niður vegg og opna úr forstofuherbergi inn í stofu og koma fyrir sjónvarpsholi. Hurðargati inn í forstofu var lokað.
Eldhús er mjög rúmgott með hydrocork á gólfi. Eldhúsið er með vandaðri og fallegri innréttingu frá Parka. Innréttingin er með eyju og skápum á tveimur veggjum. Mikið geymslupláss og góð vinnuaðstaða er í eldhúsinu. Borðplötur og vaskur eru úr Corian efni og því ber lítið á öllum samskeytum. Innréttingin er með stóru span helluborði, tveimur ofnum í góðri vinnuhæð, innbyggðum kæliskáp, frysti og uppþvottavél. Öll elduhústæki eru frá Siemens. Blöndunartæki var endurnýjað 2024. Úr eldhúsi er gengið út á timburverönd til suðvesturs.
Svefnherbergi nr. 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi nr. 2-3 eru með parketi á gólfi. Skv. teikningu er gert ráð fyrir þremur svefnherbergjum þarna í stað tveggja.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, gólfsalerni, baðkar með sturtuaðstöðu, innrétting með viðaráferð og sturtuklefa. Blöndunartæki í sturtuklefa voru endurnýjuð 2019. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi. 
Þvottahús er með flísum gólfi og skolvaski, úr þvottahúsi er innangengt í bílskúr. 
Bílskúrinn er með rafmagnsopnun á innkeyrsluhurð. Er skráður 35,6 m2

Verð kr. 136.700.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
31. maí. 2019
64.200.000 kr.
72.000.000 kr.
174.2 m²
413.318 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ