Upplýsingar
Byggt 1966
262,3 m²
5 herb.
2 baðherb.
3 svefnh.
Þvottahús
Bílskúr
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Einstaklega fallegt og vel hannað 262 fm einbýlishús á stórri sjávarlóð við Hegranes. Húsið er ein af perlum Guðmundar Kr. Kristinssonar arkitekts og er eitt af fáum húsum hans sem enn er í upprunalegu horfi. Ber húsið, bæði að innan sem utan, merki um einstaka virðingu eigenda fyrir hönnun Guðmundar Kr. Garðurinn við húsið var hannaður á sínum tíma af Reyni Vilhjálmssyni landslagsarkitekt og mynda hús og garður sterka sjónræna heild. Húsið er merkt framlag til íslenskrar byggingarlistar. Mjög vel varðveitt höfundarverk og verðugur fulltrúi byggingarlistar síns tíma. Húsið er á einni hæð, afar vel skipulagt og bjart. Einstakt handverk er í innbyggðum skápum, hillum og öðru tréverki. Byggingarárið er skráð 1966 en eignin var fullbyggð og tekin í notkun árið 1971. Húsið stendur á stórri 1.505 fm sjávarlóð sunnan megin á Arnarnesinu og skartar stórfenglegu útsýni yfir voginn. Húsið hefur fengið gott viðhald alla tíð.Bókið einkaskoðun:
Lilja s. 649-3868 eða [email protected]
Kjartan s. 824-9093 eða [email protected]
**Sækja söluyfirlit**
Eignin telur forstofu, hol, borðstofu, stofu, eldhús, tvö baðherbergi, þrjú svefnherbergi (áður fimm og auðvelt að færa til fyrra horfs), búr, þvottahús, geymslur og bílskúr.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa: Flísalagt með innbyggðum skápum.
Baðherbergi 1: Staðsett við forstofu. Flísalagt með salerni, innréttingu og sturtu.
Hol: Teppalagt og tengir saman rými hússins.
Borðstofa: Opin við eldhús og teppi á gólfi. Útgengi um stóra rennihurð út í skjólsælan garðinn.
Stofa: Björt og rúmgóð með góflsíðum gluggum og stórkostlegu útsýni til sjávar. Teppi á gólfi.
Hol: Mjög rúmgott og bjart hol er framan við svefnherbergjaálmuna þar sem útgengi er út í garð um stóra rennihurð.
Hjónaherbergi 1: Innst í svefnherbergjaálmu er hjónaherbergið. Herbergið er mjög rúmgott með góðu fataherbergi. Innangengt er í baðherbergi sem er einnig opið frá holi.
Baðherbergi 2: Rúmgott, flísalagt baðherbergi með salerni, innréttingu, baðkari og sturtu. Baðherbergi er opið við hjónaherbergi og hol.
Herbergi 2: Mjög rúmgott með innbyggðum skápum og teppi á gólfi. Upprunalega voru hér tvö herbergi og er auðvelt að færa það aftur til fyrra horfs.
Herbergi 3: Mjög rúmgott með innbyggðum skápum og teppi á gólfi. Upprunalega voru hér tvö herbergi (annað forstofuherbergi) og er auðvelt að færa það aftur til fyrra horfs.
Eldhús: Upprunalegar, einstaklega vel með farnar innréttingar, hannaðar af Guðmundi Kr. Kristinssyni arkítekt. Þakkúplar varpa fallegri birtu inn í rýmið.
Þvottahús: Inn af eldhúsi er rúmgott þvottahús með innréttingu og útgengi í bakgarð og að bakinngangi að bílskúr.
Búr/geymsla: Staðsett inn af þvottahúsi.
Bílskúr: Mjög rúmgóður, 62 fm tvöfaldur bílskúr. Innaf bílskúr er geymsla og bakútgangur. Í bílskúr er stýring fyrir lofthitakerfi sem kyndir húsið.
Garður: Afar fallegur og gróinn garður með skjólsælum svæðum og fallegu útsýni.
Viðhaldssaga undanfarinna ára:
2007 - Fyllingar undir timburgluggum endurnýjaðar.
2010 - Gler endurnýjað nema í bílskúr.
2012 - Pergóla götu megin endurnýjuð. Ný sérsmíðuð vaskinnrétting í þvottahúsi.
2020 - Tjörupappi á aðalþaki endurnýjaður. Koparáfella sett yfir þakkant. Lofttúðum komið fyrir í þaki.
2023 - Tjörupappi lagður á steypt bílskúrsþak. Ryðfrí frágangsáfella sett við kant. Loftræstihattur frá samstæðu endurnýjaður.
2024 - Gert við múr á þakkanti bílskúrs og við glugga. Sprunguviðgerðir í aðalhúsi. Tréverk lagfært og endurkíttað með gluggum. Loft og veggir í bílskúr heilspartlaðir og málaðir. Gólf í geymslum málað. Rakaskemmdir í steyptum veggjum innanhúss lagfærðar. Veggir innanhúss málaðir. Steyptir útveggir og tréverk hreinsað og málað. Bílskúrs- og sorpgeymsluhurðir lagfærðar.
Húsið hefur fengið gott almennt viðhald í gegnum árin. Húsið er í meginatriðum upprunalegt og því eðlilegt að margt þarfnist viðhalds og endurnýjunar. Helstu atriði eru: Einangrun og rakavörn í þaki að innanverðu. Niðurfallsrör í steyptum vegg. Þakkúplar. Rafmagns-, frárennslis- og vatnslagnir. Hita- og loftræstisamstæða. Hreinlætis- og blöndunartæki. Lýsing og rafbúnaður. Flísalögn. Á nokkrum stöðum eru merki um rakabletti eða galla sem þarfnast frekari skoðunar.
Nánari upplýsingar veita:
Kjartan Hallgeirsson - Löggiltur fasteignasali í síma 824-9093 eða [email protected]
Lilja Guðmundsdóttir - Löggiltur fasteignasali í síma 649-3868 eða [email protected]
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook