Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1985
svg
109,7 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir í sölu afar bjarta og rúmgóða 4-5 herbergja íbúð á tveimur hæðum í litlu fjölbýli ásamt stæði í bílageymslu við Seilugranda 7 í Reykjavík. Um er að ræða afar spennandi íbúð í rólegu barnvænu hverfi á þessum vinsæla stað í vesturbænum. Eignin skiptist í afar rúmgott alrými sem rúmar auðveldlega borðstofu og stofu, með útgengi á skjólgóðar suðursvalir, eldhús með góðu skápaplássi og innréttingu, tvö baðherbergi (uppi og niðri), þrjú svefnherbergi, sjórnvarpshol og geymslu inn af sameignargangi niðri. Íbúðinni fylgir mjög vel staðsett bílastæði í bílageymslu, þar sem einnig er mjög góð þvottaraðstaða fyrir bíl með tilheyrandi áhöldum og tækjum. Öllu þessu til viðbótar er staðsetningin og allt umhverfið í kring frábær fyrir unga vísitölu fjölskýldu, þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, skóla, hreyfingu, íþróttir og fleira. Hafið samband við Aðalstein Bjarna lgf. í síma 773-3532 eða [email protected] fyrir nánari upplýsingar og skoðun.

Eignin Seilugrandi 7 er skráð sem hér segir hjá fasteignaskrá HMS: Eign 202-4054, birt heildarstærð 109.7 fm.

Nánari lýsing og skipting eignarhluta:
NEÐRI HÆÐ:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp sem innfelldur er í vegg.
Svefnherbergi (I) er inn af forstofu með parket á gólfi og fataskáp með rennihurðum. Stór og opnanlegur þakgluggi.
Baðherbergi er inn af forstofu við stiga með nýlegum vaski, skáp og spegli. Baðkar með handsturtu og salerni. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Stór og opnanlegur þakgluggi. Flísar á gólfum og í kring um baðkar.
Alrými sem rúmar vel bæði setustofu og borðstofu með parketi á gólfi og útgengi á svalir. Afar bjart rými með glugga í tvær áttir, þar af stóra glugga í suður. Möguleiki á að stúka af auka herbergi á bak við stiga.
Svalir eru afar rúmgóðar og skjólsælar og snúa í suður.
Eldhús er inn af alrými með stílhreina hvíta L-laga innréttingu og nýleg eldunartæki ásamt gufuháf. Nægt skápa pláss þar sem að auki er stór hvílakkaður veggskápur (búrskápur). Bjart rými með glugga í tvær áttir.
EFRI HÆÐ:
Komið er upp hringstiga sem tengir saman hæðir.
Rúmgott hol er við stiga og tengir saman vistaverur, sem nýtist vel sem sjónvarpshol. Parket á gólfi.
Svefnherbergi (2) er nokkuð rúmgott og stærra að gólfflatarmáli en uppgefnir fermetrar, með parket á gólfi og fataskáp. Stór og opnanlegur gluggi.
Baðherbergi með salerni vask og spegli ásamt sturtu.
Hjónaherbergi (3) Er afar rúmgott og stærra að gólfflatarmáli en uppgefnir fermetrar. Afar bjart rými með glugga í þrjár áttir, þar af stór gluggi í vestur. Tveir stórir og opnanlegir þakgluggar. Parket á gólfi
Geymsla íbúðar er í kjallara í geymslugangi sameignar.
Sameign er öll snyrtileg og nýlegt teppi á stigagangi. Í sameign er einnig sameiginlegt þvottahús og hjólageymsla.
Í bílakjallara er bílastæði íbúðar afar vel staðsett og er með hleðslustöð fyrir rafbíl. Í bílageymslu er sérlega góð aðstaða til að þrífa bifreiðar, með öllu tilheyrandi.
Bílaplan er einnig við hliðina á húsinu með töluvert af bílastæðum.

Allar nánari upplýsingar veita:
Aðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali / s.773-3532 / [email protected]
Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali / s.856-5858 / [email protected]

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
 

img
Aðalsteinn Bjarnason
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasalan TORG
Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
img

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
24. apr. 2024
80.200.000 kr.
24.500.000 kr.
109.7 m²
223.336 kr.
22. feb. 2013
27.600.000 kr.
32.000.000 kr.
112.6 m²
284.192 kr.
8. mar. 2012
24.550.000 kr.
33.000.000 kr.
112.6 m²
293.073 kr.
12. okt. 2007
21.180.000 kr.
33.000.000 kr.
112.6 m²
293.073 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone

Aðalsteinn Bjarnason

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ