Opið hús: Njálsgata 52A, 101 Reykjavík. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. febrúar 2026 milli kl. 12:00 og kl. 13:00.
Lýsing
Eignin skiptist í þrjár hæðir:
- Jarðhæð, forstofa/hol, snyrting, þvottaherbergi með sturtu. Stofa með eldhúskrók, herbergi, útgengt á aflokaðan sérafnotarétt.
- Miðhæð, eldhús, stofa, borðstofa, hol, herbergi, baðherbergi.
- Efsta hæð, rúmgott rými undir súð, nýtt sem svefnherbergi, ekki skráð í fermetratölu eignarinnar.
Jarðhæð: Hentar vel til útleigu.
Forstofa: með fallegum flísum á gólfi. Gólfhiti.
Þvottahús: inn af forstofu er rúmgott þvottaherbergi með sturtuklefa, gluggi með opnanlegu fagi, gott skápapláss.
Snyrting: Undir stiga í forstofu er snyrtileg lítil snyrting með opnanlegum glugga.
Herbergi: Svefnherbergi er rúmgott með góðum glugga. Fataskápur. Línoleum dúkur á gólfi.
Stofa: Falleg stofa með útgengi á hellulagðan sérafnotareit aftan við húsið. Lítill kaffikrókur með innbyggðum ísskáp. Línoleum dúkur á gólfi.
Miðhæð: Fallegur steyptur stigi upp á efri hæðina. Gólf eru flotuð utan eldhús sem er dúklagt.
Hol: komið upp í fallegt og bjart hol, þaðan gengið í önnur rými hæðarinnar.
Baðherbergi: Rúmgott og skemmtilegt rými. Flísar á veggjum að hluta. Upphengt salerni, hornbaðkar. Skápur með sögu ber uppi handlaug. Gluggi með opnanlegu fagi.
Borðstofa/stofa: Afar fallegt og hlýlegt rými, með útgengi út á svalir í suður. Inn af borðstofu er eldhús.
Eldhús: falleg innrétting með góðu skápa og vinnuplássi. Háfur. Stæði fyrir uppþvottavél. Flísalagt milli skápa, rúmgott rými með góðum glugga.
Herbergi: ágætt, rúmgott og bjart vinnuherbergi. Stigi að risi liggur frá þessu rými.
Rishæð: Viðarstigi er upp í risið, þar er virkilega skemmtilegt og rúmgott rými, sem er nýtt í dag sem svefnherbergi. Tveir þakgluggar gefa góða birtu. Upprunalegar fjalir að hluta á gólfi. Ekki skráð í fermetratölu eignar.
Endurbætur og viðhald m.a:
2012 baðherbergi endurnýjað.
2014 þak málað. Rennur endurnýjaðar.
2016 gluggar á suðurhlið yfirfarnir og sett tvöfalt gler auk þess skipt alveg um tvo glugga og settar hurðar til útgöngu á jarðhæð og miðhæð.
2023 baklóð hellulögð og dren yfirfarið.
2024 skólplagnir endurnýjaðar, settur hiti í gólf á jarðhæð.
2026 Svalir settar á miðhæð, suðurhlið.
Hér er um að ræða fallegt og skemmtilegt sérbýli í miðbænum sem hefur fengið gott viðhald. Aflokaður hellulagður sérafnotareitur aftan við hús. Eign sem vert er að skoða. Fyrirliggjandi eru samþykktar teikningar að byggja kvist á báðum þakhliðum. Allar nánari upplýsingar um eignina veitir Sigríður Lind Eyglóardóttir löggiltur fasteignasali. [email protected] / 8994703.
Heimili fasteignasala - á traustum grunni frá 2002. Vegna mikillar eftirspurnar á markaði vantar okkur fleiri eignir á söluskrá. Hafið samband í síma 530-6500 eða sendið okkur tölvupóst á [email protected] og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
Heimili fasteignasala – á traustum grunni frá 2002.
Grensásvegi 3, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Heimili og á Facebook.