Opið hús: Bólstaðarhlíð 8, 105 Reykjavík. Bókið skoðun. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.
Lýsing
Nánari lýsing: Sameiginlegur inngangur með risíbúð. Stigapallur er fyrir framan inngang í íbúð.
Einnig er inngangur í forstofuherbergi frá stigapalli.
Komið er inn á breiðan gang(hol) með spegli, fatahengi og veggskáp.
Stór og björt stofa með útgengi út á svalir til suðurs. Fallegt útsýni.
Borðstofa er samliggjandi með stofu með rennihurð á milli rýma.
Hjónaherbergi með fataskápum.
Flísalagt baðherbergi með baðkari, innréttingu og glugga.
Eldhús með ofni, uppþvottavél og helluborði frá AEG.
Barnaherbergin eru hlið við hlið með hurð á milli, en einnig er hægt að ganga inn í annað þeirra frá stigapalli. Innbyggður skápur er í öðru herberginu. Mikil lofthæð er í íbúðinni sem gerir hana bjarta og rúmgóða.
Á gólfum er parket og flísar.
Í kjallara er sameiginlegt þvottahús og sérgeymsla.
Bílskúrinn var innréttaður sem snyrtileg íbúð árið 2019 og er í útleigu í dag. Íbúðin skiptist í svefnherbergi, opið alrými með góðri eldhúsinnréttingu og baðherbergi með sturtu, flísum á gólfi og veggjum. Á gólfum er harðparket.
Bílastæði er fyrir framan bílskúrinn. Að auki er gatan með bílastæðum beggja megin götunnar sem nýtist vel fyrir bílastæði.
Viðhald: Skipt var um glugga í húsinu árið 2023.
Frárennslislagnir undir húsinu voru endurnýjaðar 2017.
Ytra byrði hússins var endurnýjað árið 2002, múr lagfærður og húsið endursteinað.
Eignin er á eftirsóttum stað í Hlíðunum. Aðgengi að húsinu er gott og í göngufæri eru leik- og grunnskólar, verslanir, kaffihús og almenningssamgöngur auk þess sem örstutt er í Klambratún.
Nánari upplýsingar veitir: Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 [email protected] löggiltur fasteignasali.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.