Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1972
117 m²
5 herb.
1 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 24. febrúar 2026
kl. 17:00
til 18:00
Opið hús: Markland 4, 108 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 03 01. Eignin verður sýnd þriðjudaginn 24. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 18:00.
Lýsing
Eignamiðlun kynnir:
Eignamiðlun og Ólafur H. Guðgeirsson lgfs kynna sérlega bjarta og fallega, talsvert endurnýjaða fimm herbergja íbúð með glæsilegu útsýni á efstu hæð í litlu fjölbýli við Markland 4 í Fossvoginum. Samkvæmt fasteignamati er heildareignin 117,4 fermetrar, sem skiptist í 113,4 fermetra íbúð merkt 02-0301 og geymslu í kjallara 4,6 fermetrar merkt 02-0105, samtals 117. Íbúðin er á 3. hæð. Í íbúðinni eru fjögur svefnherbergi, baðherbergi, forstofa, stórar og bjartar stofur og opið eldhús með þvottahúsið/búri innaf. Svalir eru eftir allri framhlið íbúðar. Búið er að endurnýja eldhús og bað, og leggja ljóst harðparket á öll megin rými.Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected] sem einnig sýnir eignina.
Gengið er upp eina og hálfa hæð þegar komið er inn í sameign hússins. Í íbúðinni er komið inn í gang þar sem er stór hvítlakkaður fataskápur á heilum vegg til vinstri, opið inn í eldhús til hægri og hol eða miðrými beint fram undan þar sem stofa er til hægri, svefnherbergi og baðherbergi til vinstri. Á öllum megingólfum er ljóst harðparkett.
Stofur og eldhús eru í einu opnu og björtu rými, með stórum gluggum til suðurs. Skjólgóðar svalir, 14,8 fermetrar, eru meðfram allri suðurhliðinni. Gott útsýni er úr stofu og af svölum. Opið eldhúsið er með stórri hvítri innréttingu með góðu skápaplássi og góðu vinnupláss, gaseldavél, stállitum ofni í vinnuhæð og innbyggðum ísskáp. Inn af eldhúsi er þvottahús eða búr, lokað með rennihurð. Þar er pláss fyrir annan ísskáp, þvottavél og þurrkara ásamt góðu vinnu- og skápaplássi. Gráar steinflísar eru á gólfi eldhúss og þvottahúss.
Á svefnherbergisgangi eru fjögur björt og rúmgóð herbergi. Hjónaherbergið er sérlega rúmgott, með stórum hvítlökkuðum fataskáp á heilum vegg. Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, með baðkari með sturtu, vegghengdu salerni, handklæðaofni, innréttingu undir vask og stórum skáp á heilum vegg í enda baðherbergis.
Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.
Húsið hefur fengið reglulegt og gott viðhald í gegnum árin, en helstu endurbætur sem fram hafa farið eru eftirfarani:
Helstu endurbætur sem hefur verið farið í síðustu ár:
2011 Sameign tekin í gegn, máluð og nýtt teppi lagt.
2012 Þak og rennur endurnýjað
2020 Skipt um gler í anddyri og húsnúmer sett í glerið.
2012 Bílaplan, malarbætt í holur.
2023-2025 Sprunguviðgerðir á öllu húsinu og málun.
2024 Dyrasímakerfi með myndavél.
2025 skipt um alla glugga og svalahurð á suðurhlið.
Einstaklega fallega íbúð á eftirsóttum stað. Stutt í leik- og grunnskóla. Eign sem vert er að skoða.
Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is
***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.
Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.
Heimasíða Eignamiðlunar
Eignamiðlun á Facebook
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
20. feb. 2019
49.600.000 kr.
60.000.000 kr.
117 m²
512.821 kr.
19. jún. 2015
32.200.000 kr.
42.000.000 kr.
117 m²
358.974 kr.
18. maí. 2006
20.220.000 kr.
25.400.000 kr.
117 m²
217.094 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026