Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Vista
fjölbýlishús

Tjarnarból 6

170 Seltjarnarnes

98.400.000 kr.

740.406 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2068411

Fasteignamat

89.800.000 kr.

Brunabótamat

61.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1972
svg
132,9 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Útsýni
svg
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 22. febrúar 2026 kl. 13:00 til 13:30

Opið hús: Tjarnarból 6, 170 Seltjarnarnes, Íbúð merkt: 01 03 02. Eignin verður sýnd sunnudaginn 22. febrúar 2026 milli kl. 13:00 og kl. 13:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Virkilega falleg, rúmgóð og vel skipulögð 132,9 fm íbúð á þriðju hæð með miklu og fallegu sjávarútsýni við Tjarnarból 6, 170 Seltjarnarnesi. Íbúðin er með góðum svölum, þrem svefnherbergjum og mjög rúmgóðu alrými. Húsið lítur vel út, múrviðgert og málað 2022, einnig voru svalagólf tekin í gegn. Íbúðin er með sérmerkt bílastæði við hlið hússins og búið er að setja upp sameiginlega hleðslustaura.

Nánari upplýsingar veitir: Gunnar Bergmann Jónsson í síma 839-1600 eða [email protected]


Eignin skiptist í forstofu, eldhús og búr, rúmgóða stofu og borðstofu, þrjú svefnherbergi, hol, baðherbergi og geymslu í sameign.  
Nánari lýsing: 
Forstofa: Komið er inn í góða forstofu með skáp og parket á gólfi. 
Stofa og borðstofa: Mjög rúmgóð og björt stofa með stórum gluggum. Útgengi út á suður svalir með virkilega fallegu útsýni. Parket á gólfi. 
Eldhús: Viðar innrétting, borðkrókur, flísar á gólfi og gluggi. Gott búr er innaf eldhúsi.
Baðherbergi: með hvítri innréttingu, baðkari með sturtuaðstöðu, salerni og glugga. Flísar á gólfi og veggjum. Aðstaða fyrir þvottavél á baðherbergi.
Herbergin eru þrjú og eru á parketlögðum svefnherbergisgangi. Falleg útsýni úr öllum herbergjum yfir bæinn og í átt að Esju.
Hjónaherbergi: Er mjög rúmgott, með góðum skáp og parketi á gólfi.
Hin tvö herbergin eru svipað stór með parketi á gólfi.
Geymslan er 10,9 fm. Bílastæði við hliðina á húsinu með sérmerktu stæði fyrir íbúðina. Búið að setja upp sameigninlega hleðslustaura.

Sameign er öll hin snyrtilegasta. Húsið hefur fengið gott viðhald og m.a. endurnýjaðir gluggar í öllu húsinu. Stigagangurinn er á pöllum og er ein íbúð á hverjum palli og því gott næði við hverja íbúð. Engin íbúð er fyrir ofan þessa eign.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati. (0,4% ef um er að ræða fyrstu eign) 
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali. 
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana. 
4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr kauptilboði.

Eignamiðlun ehf. - Grensásvegur 11, 108 Reykjavík - [email protected] - Gunnar Bergmann Jónsson löggiltur fasteignasali

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

img
Gunnar Bergmann Jónsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Eignamiðlun
Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
img

Gunnar Bergmann Jónsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík

Gunnar Bergmann Jónsson

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík