Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Guðmundur Th Jónsson
Elín D. Guðmundsdóttir
Sigríður Kjartansdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 2009
svg
268,2 m²
svg
6 herb.
svg
3 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Bílskúr
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilegt, vandað og vel skipulagt 268,2 fermetra einbýlishús á tveimur hæðum með tvöföldum bílskúr á eftirsóttum stað við Skeiðakur í Garðabæ. Húsið sem teiknað er af Kára Eiríkssyni stendur á fallegri afgirtri eignarlóð með viðarveröndum, skjólveggjum og heitum potti. Stúdíó er á jarðhæð með sérinngangi.

Eignin skiptist í forstofu, hol, baðherbergi, gestasnyrtingu, tvö barnaherbergi, hjónaherbergi með fataherbergi, sjónvarpsstofu, samliggjandi stofur, eldhús, þvottaherbergi, tvöfaldan bílskúr og stúdíó sem um 55 fermetrar og samanstendur af herbergi, stofu, baðherbergi og er með sérinngangi og einnig er innangengt úr húsi.

Mikil lofthæð er í húsinu sem er með gegnheilu parketi á öllu nema anddyri og votrýmum. Verulega aukin lofthæð er í stofu sem er með fallegum loftbitum, arni og gólfsíðum gluggum. Endurbætur á innanhússhönnun voru gerðar af Rut Kára árið 2018.

Eignin er sýnd skv. samkomulagi. Bókið einkaskoðun í s: 570-4500 eða á netfanginu [email protected]


Lýsing eignar:
Forstofa, flísalögð og rúmgóð með miklum fataskápum og setbekk.
Snyrting, með glugga, flísalagt gólf og veggir, upphengt wc og handlaug.
Hol, parketlagt.
Sjónvarpsstofa, parketlögð og afstúkuð frá stofum.
Samliggjandi stofur, parketlagðar, rúmgóðar og bjartar með gólfsíðum gluggum, arinn, rennihurð er út á verönd með heitum potti. Verulega aukin lofthæð er í stofum.
Eldhús, opið við stofur og hol, flísalagt, bjart og rúmgott með mjög fallegum hvítum sérsmíðuðum innréttingum með kvartssteini á borðum, tvöföldum ísskáp með klakavél, tveimur ofnum í vinnuhæð, og örbylgju, búrskáp, eyja með spanhelluborði, innbyggð uppþvottavél og góðri borðaðstöðu. Útgengi er á á verönd frá eldhúsi.
Gengið er upp hálfa hæð í svefnherbergisálmu.
Svefnherbergisgangur, parketlagður með góðri vinnuaðstöðu, föstum sérsmíðuðum skápum á vegg og útgengi á svalir til austurs.
Barnaherbergi I, parketlagt og rúmgott með fataskápum.
Barnaherbergi ll, parketlagt og rúmgott með fataskápum
Baðherbergi, flísalagt gólf og veggir, innrétting, handklæðaofn, vegghengt wc og flísalögð sturta með sturtugleri og baðkar með flísalögn í kring.
Hjónaherbergi, parketlagt og rúmgott með fataherbergi innaf og útgengi á stórar svalir til suðurs 
Fataherbergi, með glugga, inn af hjónaherbergi og er parketlagt með föstum innréttingum.
Þvottaherbergi, rúmgott með glugga, flísalagt gólf, innrétting með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð, vinnuborði, vaski og hillum.
Gengið er niður hálfa hæð frá holi í studíóíbúð og bílskúr.
Inngangur, flísalagður með fataskáp á heilum vegg.
Stúdíó, sem er um 55 fermetrar að stærð skiptist þannig:
Stofa, parketlögð..
Herbergi, parketlagt og með fataskáp.
Baðherbergi, flísalagt gólf og hluti veggja, flísalögð sturta og innrétting.
Bílskúr, sem innangengt er í frá neðri hæð, er 44,5 fermetrar að stærð með rafknúinni innkeyrsluhurð, flísalögðu gólfi, gönguhurð og gluggum, rennandi vatni og góðum skápum. Sérstæð gönguhurð er í bílskúr.
Geymsla, er við hlið bílskúrs.

Húsið að utan lítur mjög vel út og hefur alla tíð fengið mjög gott viðhald. 

Lóðin, sem er eignarlóð er 742,0 fermetrar að stærð er fullfrágengin og mjög glæsileg. Á framlóð eru stór hellulögð upphituð innkeyrsla með stæðum fyrir þrjá bíla, hellulögð stétt með hitalögnum undir og steyptir veggir ásamt grasflöt. Á lóð til vesturs og suðurs er vönduð afgirt viðarverönd með heitum potti.

Staðsetning eignarinnar er virkilega góð á rólegum og eftirsóttum stað í Garðabæ.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu [email protected].

Forsendur söluyfirlits: 

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. 
Skoðunarskylda: 
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Er því væntanlegum kaupendum bent á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

 

Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone
Fasteignamarkaðurinn

Fasteignamarkaðurinn

Óðinsgötu 4, 101 Reykjavík
phone