Tökum á móti gestum á Heklureit, inngarður, hringið í Jason í s. 7751515 eða í Guðbjörg s. 8995533
Lýsing
Íbúð 204 er rúmgóð 3ja herbergja íbúð á 2. hæð í 8. hæða húsi, með öllum þægindum sem hægt er að hugsa sér. Samtals 104,7 fermetrar. Svalir til suðurs (7,2 fm) og norðurs (4,3 fm) og skiptist íbúðin í 2 svefnherbergi, stofu, eldhúsi og baðherbergi og sér þvottahús. Gólfhiti er í íbúðinni. Sérgeymsla fylgir að stærðinni 7,7 fm. Stæði merkt B24 í neðri bílakjallara fylgir íbúðinni. Hægt er að velja á milli tveggja innréttingarþema, Hlýju eða Bjarma.
Eignin afhendist í september 2025.
Heimasíða
Húsið er klætt með mismunandi litaðri álklæðningu ásamt Bambus sem gefur því lifandi yfirbragð og þarfnast lítils viðhalds.
Miðlæg staðsetning tryggir gott aðgengi að helstu umferðaræðum sem sparar tíma og peninga.
Örstutt í helstu stofnbrautir eins og Sæbraut, Kringlumýrabraut og Miklubraut.
Kaupandi greiðir skipulagsgjald sem er 0,3% af væntanlegu brunabótamati
Bókið skoðun hjá sérfræðingum um eignina:
Jason Kristinn Ólafsson, sími 775 1515 / [email protected]
Þórhallur Biering Guðjónsson, í síma 896-8232 / [email protected]
Hlynur Bjarnason, sími 697 9215 / [email protected]
Dagrún Davíðsdóttir, sími 866 1763 / [email protected]
Atli S. Sigvarðsson, sími 899 1178 / [email protected]
Gunnar S. Jónsson, sími 899 5856 / [email protected]
Páll Þórólfsson, sími 893 9929 / [email protected]
Guðbjörg Guðmundsdóttir sími 899 5533 / [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.