Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hafdís Rafnsdóttir
Dórothea E. Jóhannsdóttir
Sigurður Gunnlaugsson
Jón Gunnar Gíslason
Hafliði Halldórsson
Aðalsteinn Bjarnason
Margrét Rós Einarsdóttir
Guðný Ösp Ragnarsdóttir
Elka Guðmundsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1983
svg
310 m²
svg
7 herb.
svg
3 baðherb.
svg
5 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan TORG kynnir: Einstakt einbýlishús, teiknað af Jes Einari Þorsteinssyni, með glæsilegu útsýni við Háholt 7 í Garðabæ. Húsið er skráð 310 fm og er á þremur hæðum. Húsið skiptist í fimm svefnherbergi, tvær stofur, tvö eldhús, tvö baðherbergi, gestasalerni, þvottaherbergi, anddyri og bílskúr. Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: [email protected]

Nánari lýsing: Gengið er inn í húsið á miðhæð og inn í anddyri með innbyggðum fataskápum fyrir innan. Frá anddyri er innangengt inn í þvottahús og bílskúr með háalofti. Komið er síðan inn í bjart og opið alrými með fallegu útsýni. Í alrýminu er arinstofa, setustofa og borðstofa. Eldhúsinnréttingin er úr ljósum við og flæðir eldhúsið að hluta til inn í eldhúskrók og stofuna. Útgengt er út á rúmgóðar svalir með frábæru útsýni yfir Garðabæ, út á sjó og alla leið á Snæfellsnesið. Lítið gestasalernir er á miðhæð hússins ásam búri við eldhúsið. Á efstu hæð er baðherbergi með sturtu, salerni og ljósri innréttingu með handlaug. Á efstu hæðinni eru einnig þrjú svefnherbergi. Á neðstu hæð hússins er innangengt inn í sér íbúð með baðherbergi, þvottahúsi, tvö svefnherbergi, eldhúsi og stofu. Baðherbergið er mjög rúmgott með sérsmíðuðu baðkari/sturtu, salerni og ljósri innréttingu með handlaug. Sér inngangur er inn í þessa íbúð þannig auðvelt er að hafa hana sem sér útleigueiningu eða part af húsinu. Mikið er um fallega sjónsteypu í húsinu og er húsið sérlega skemmtilega hannað með óhefðbundinni lögun.  

Allar nánari upplýsingar veitir Darri Örn Hilmarsson, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0000 eða í tölvupósti: [email protected]

Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone
Fasteignasalan TORG

Fasteignasalan TORG

Garðatorgi 5, 210 Garðabæ
phone