Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Hannes Steindórsson
Bogi Molby Pétursson
Guðrún Antonsdóttir
Heimir Hallgrímsson
Hrafnkell P. H. Pálmason
Viðar Marinósson
Elías Haraldsson
Kristján Þórir Hauksson
Albert Bjarni Úlfarsson
Ragnar Þorsteinsson
Þórey Ólafsdóttir
Andri Freyr Halldórsson
Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 2008
221,1 m²
5 herb.
2 baðherb.
4 svefnh.
Þvottahús
Lýsing
Nýtt á skrá! Tjarnarmói 2 Selfossi - Frábært 221,1 fermetra fjölskyldu parhús með útleigueiningu og glæsilegu útsýni!
Lind fasteignasala kynnir afar fallegt, vel skipulagt og bjart 221,1 fermetra parhús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum við Tjarnarmóa 2 á Selfossi. Eignin skiptist í 187,1 fermetra íbúðarrými og 34,0 fermetra innbyggðan bílskúr. Fjögur svefnherbergi og tvö baðherbergi eru í húsinu en búið er að stúka af útleigurými sem auðvelt er að opna aftur. Gólfhiti er í öllu húsinu og mikil lofthæð.
Komið er inn í falleg alrými frá forstofu sem skiptast í stóra stofu, borðstofu, eldhús og sjónvarpsrými með mikilli lofthæð. Eldhús opið inn í borðstofu og stofu. Stórir gólfsíðir gluggar til suðvesturs og norðvesturs með rennihurð út í bakgarð. Afar glæsilegt útsýni er frá húsinu að Ingólfsfjalli, Hellisheiði, Ölfus og Ölfusá. Glæsilegar göngu- og hjólaleiðir í næsta nágrenni meðfram Ölfusá.
Um er að ræða endalóð á þessum fallega útsýnisstað líkt og fyrr greinir. Skjólgóður bakgarður til suðvesturs með hellulagðri verönd og tyrfðum garði. Fallegar steinhleðslur, grindverk og hekk afmarkar lóðarmörk. Malbikuð stétt fyrir framan bílskúr og rafhleðslustöð.
Nánari lýsing:
Forstofa: Með flísum á gólfi, góðum skápum og aukinni lofthæð.
Stofa: Er stór með mikilli lofthæð og flísum á gólfi. Stofa er opin við eldhús og rúmar vel stóra borðstofu og setustofu. Stórir gólfsíðir gluggar til suðvesturs og norðvesturs með afar glæsilegu útsýni til fjalla og að Ölfusá. Rennihurð í stofu í skjólgóðan bakgarð til suðvesturs.
Eldhús: Með flísum á gólfi og fallegri eldhúsinnréttingu með eldhúseyju og góðu skápaplássi. Aukin lofthæð, stál háfur, tengi fyrir uppþvottavél og Siemens bakaraofn. Flísar á milli skápa og gluggi til vesturs inn í bakgarð hússins.
Gangur: Með flísum á gólfi og góðum skápum.
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með flísum á gólfi, aukinni lofthæð og fataskápum. Gluggar til austurs og norðurs.
Svefnherbergi II: Með flísum á gólfi, aukinni lofthæð, fataskápum og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Með flísum á gólfi, aukinni lofthæð, fataskápum og glugga til austurs.
Baðherbergi: Með flísum á gólfi, baðkari með sturtutækjum og glerþili. Aukin lofthæð, innrétting við vask, upphengt salerni og gluggi til austurs.
Aukarými/útleigurými: Er með sérinngangi. Hurð er á milli íbúðar og leigurýmis og einfalt að nýta allt húsið sem eina heild. Gott rými fyrir uppkomin börn/unglinga eða til útleigu. Rýmið skiptist í forstofu, eldhúsaðstöðu, borðkrók, svefnherbergi og sér baðherbergi. Aðstaða fyrir þvottavél/þurrkara. Eldavél, vaskur og aðstaða fyrir kæliskáp. Gott svefnherbergi með flísum á gólfi, fataskápum og glugga til vesturs. Baðherbergi með flísum, sturtu, upphengdu salerni og vaski.
Möguleiki er að opna aftur inn í aukarýmið og vera þar með innangengt í fjórða svefnherbergið, auka baðherbergi og þvottaherbergi með útgengi á baklóð hússins.
Bílskúr: Er stór eða 34,0 fermetrar að stærð. Flísalagður og geymsluloft yfir hluta.
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknarverðum stað við Tjarnarmóa á Selfossi þaðan sem stutt er í grunnskóla, leikskóla, íþróttasvæði auk verslunar og þjónustu. Glæsilegar hjóla- og gönguleiðir í nágrenni við náttúruna og Ölfusá.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali í síma 849-0672 eða á netfanginu [email protected].

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
8. feb. 2018
45.700.000 kr.
50.800.000 kr.
221.1 m²
229.760 kr.
19. ágú. 2008
24.060.000 kr.
22.400.000 kr.
221.1 m²
101.312 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026