Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2016
svg
160,6 m²
svg
3 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Bílastæði
svg
Lyfta
Opið hús: 26. febrúar 2026 kl. 17:00 til 17:30

Opið hús: Grandavegur 42b, 107 Reykjavík, Íbúð merkt: 02 07 01. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. febrúar 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Glæsileg 3ja herbergja íbúð á 7. og efstu hæð í nýlegu lyftuhúsi við Grandaveg 42b í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er afar björt og öll hin glæsilegasta, með alrými sem liggur í gegnum alla íbúðina og tvennar yfirbyggðar svalir hvort í sínum enda alrýmisins. Þar a auki er ca. 150 fm þakgarður sem fylgir eigninni, sem er frábært útisvæði með heitum potti og einstöku útsýni til sjávar og yfir borgina og helstu kennileiti hennar. Frá svölum er nánast 360° útsýni, annars vegar sjávarsýn og hins vegar yfir vesturbæ Reykjavíkur með Bláfjöll og Reykjanesið vel sýnilegt úr fjarska. 
Stæði fylgir í bílakjallara og að auki eru gestastæði í bílakjallara.

***Smelltu hér fyrir söluyfirlit***


Íbúðin skiptist í forstofu, gestasnyrtingu, tvö svefnherbergi, rúmgott alrými með stofu, borðstofu og eldhúsi, rúmgott baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvennar yfirbyggðar svalir, þakgarð og sérgeymslu í kjallara.
Birt stærð séreignar er 125,1 fm samkvæmt Þjóðskrá Íslands, þar af er sérgeymsla 8,8 fm.
Svalir í suður eru 22,4 fm og svalir í norður eru 13,1 fm. Heildarflötur íbúðar er því 160,6 fm.

***Smelltu hér til að sjá myndband af þakgarði***

Nánari lýsing eignar:

Rúmgóð forstofa með góðum skápum sem ná upp í loft.
Eldhús er á milli borðstofu og stofu í opnu rými. Vönduð innrétting með innbyggðum ísskáp og innbyggðri uppþvottavél. Tveir bakaraofnar í vinnuhæð. Glæsileg eyja með spanhelluborði og kvartsteini á borðum. Öll eldhústæki eru frá AEG.
Rúmgóð borðstofa með fallegum sérsmíðuðum bekk við glugga. Útgengt út á 13,1 fm yfirbyggðar svalir með útsýni út á sjó.
Stofan er einstaklega björt og þaðan er útgengt út á sólríkar 22,8 fm yfirbyggðar svalir sem snúa til suðurs.
Báðar svalir nýtast mjög vel sem framlenging á stofum. Hægt er að njóta svalanna í öllum veðrum.
Hjónaherbergið er rúmgott með stórum gluggum og stórum fataskápum. Glæsilegt útsýni yfir borgina og til fjalla.
Aukaherbergið er rúmgott með fataskáp og sjávarútsýni.
Baðherbergið er flísalagt með walk-in sturtu, upphengdu salerni, handklæðaofni og vandaðri innréttingu. Inn á baðherbergi er vel skipulögð þvottaaðstaða sem lokast af með sérsmíðuðum rennihurðum.
Gestasalerni er flísalagt með upphengdu salerni og nettri innréttingu.
Allar innréttingar í íbúðinni eru af vönduðustu gerð frá HTH. Forstofa og baðherbergi eru með flísum frá Parka. Alrými og svefnherbergi eru parketlögð.

Íbúðinni fylgir sérmerkt stæði í bílakjallara en búið er að leggja raflagnir í öll bílastæði þannig að rafbílaeigendur geta sett upp hleðslustöð. Einnig er gestastæði í bílakjallara.

Sérgeymsla (8,8 fm) í kjallara. Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla. Á bak við húsið er sameiginlegur garður með leiktækjum fyrir börn, góður grasflötur, borð og bekkir. Sameign og frágangur hússins er til fyrirmyndar.


Nánari upplýsingar veitir:
Unnar Kjartansson, löggiltur fasteignasali, í síma 867-0968 eða [email protected].

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
19. apr. 2022
77.600.000 kr.
115.000.000 kr.
227.6 m²
505.272 kr.
24. júl. 2019
74.150.000 kr.
91.900.000 kr.
125.1 m²
734.612 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík