Opið hús: Valshlíð 12, 102 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 02 17. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 25. febrúar 2026 milli kl. 11:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Laus við kaupsamning.
Nánari lýsing:
Anddyri með fataskáp.
Hjónaherbergi með góðu skápaplássi.
Stofa og eldhús eru í opnu rými og útgengt út á suðursvalir.
Baðherbergi með sturtu, og þvottaaðstöðu. Fataskápur í holi.
Sérgeymsla 6,7 fermetrar.
Sér bílastæði.
LÝSING almenn:
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af Alark Arkitektum og innanhúshönnun er af M/Studio Reykjavík. Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.
HÚSIÐ: Húsið er klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir danskir ál-tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIN: Aukin lofthæð, 280 cm og gólfsíðir gluggar. Vandaðar Innréttingar frá danska fyrirtækinu JKE design. Quartz borðplötur í eldhúsi og á baðherbergi frá Granítsmiðjunni. Lýsing er hönnuð af Lumex. bakaraofn og helluborð eru frá Miele.Ísskápur með frysti og uppþvottavél frá AEG. Blöndunar- og hreinlætistæki frá Tengi.
SAMEIGINLEGUR GARÐUR: Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. Bekkir og leiksvæði með leiktækjum og mjúku undirlagi.
Bókið skoðun: Jason Kristinn sími 7751515 og Guðbjörg sími 8995533
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.