Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Tinna Bryde
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
fjölbýlishús

Valshlíð 1 - 503

102 Reykjavík

100.900.000 kr.

1.235.006 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2532722

Fasteignamat

37.700.000 kr.

Brunabótamat

0 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 2025
svg
81,7 m²
svg
2 herb.
svg
1 baðherb.
svg
1 svefnh.
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Lyfta

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vönduð og stórglæsileg 2ja herbergja rúmgóð þakíbúð á 5. hæð í Valshlíð 1, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum.
Birt stærð er 81,7 m², þar af 5,7 m² geymsla í kjallara.

Þrír kaupmöguleikar í boði. 
* Hlutdeildarkaup 
* Þarft einungis 10% útborgun
* Búseturéttur 

* Quartz-steinn á borðum og milli skápa í eldhúsi
* Vandaðar innréttingar og tæki
* Frábær staðsetning

Nánari upplýsingar varðandi kaupmöguleika, eignina og skoðun fást hjá:
Pálsson fasteignasölu, [email protected] S. 764-7474

Nánari lýsing:

Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu/borðstofu í opnu rými með útgengi á yfirbyggðar svalir, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist með einstaklega vönduðum sérsmíðuðum innréttingum frá Nobilia/GKS, raftækjum frá Siemens og Witt í hæsta gæðaflokki, hágæða ítölskum blöndunartækjum frá Mariner Rubinetterie, og sterku og vönduðu gólfefni frá Álfaborg. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 3.
Í anddyri er góður fataskápur. Gengið er beint inn í rúmgott alrými; eldhús með eyju og stofu/borðstofu með útgengi á yfirbyggðar vestursvalir.
Ljós eldhúsinnrétting með mattri áferð, ljósyrjóttur quartz-steinn á borðum og milli skápa og hágæða blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél
Rúmgott svefnherbergi með góðum fataskápum.
Baðherbergi er með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni, ljós innrétting með mattri áferð og speglaskáp. Blöndunartæki úr burstuðu krómi. Innbyggð blöndunartæki í sturtu.
Í baðherbergi er afmörkuð innrétting fyrir fyrir þvottavél og þurrkara.
Sérgeymsla er í kjallara ásamt sameiginlegum hjóla- og vagnageymslum.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Allar íbúðir eru fullloftræstar og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist í hverri íbúð. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og bambus, með gluggum úr ál/við og undir byggingu er bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingarar. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir. 

www.eignavakt.is
www.verdmat.is 
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

ATH. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati. 
Myndir í auglýsingu geta verið úr annari íbúð með sama innréttingaþema.

 
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
5. Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík