Opið hús: Silfursmári 6, 201 Kópavogur, Íbúð merkt: 04 02 07. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. febrúar 2026 milli kl. 14:30 og kl. 15:00.
Lýsing
Komið er inn í rúmgóða forstofu með fataskáp.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja. Þar er falleg innrétting, upphengt salerni og sturta. Tengi er fyrir þvottavél á baðherberginu.
Stofan er góð og björt, með útgengi á góða verönd með skjólveggjum.
Svefnherbergið er rúmgott með stórum fastaskaáp.
Eldhúsið er með fallegri innréttingu, skápapláss er ágætt og vinnuaðstaða fín. Gott pláss er fyrir borðstofuborð á milli eldhúss og stofu.
Gólfefni eru parket og flísar.
Í sameign er sér geymsla. Tvær hjólageymslur eru í sameigninni.
Falleg eign í nýlegu húsi á einum eftirsóttasta stað borgarinnar.
Verslanir, veitingastaðir og þjónusta í göngufæri. Stutt í sklóla og íþróttir.
Allar nánari upplýsingar gefur:
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali í síma 896-8232 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.