Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Leirutangi 21B

270 Mosfellsbær

79.900.000 kr.

777.994 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2083988

Fasteignamat

72.550.000 kr.

Brunabótamat

58.150.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
svg
Byggt 1983
svg
102,7 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 2. mars 2026 kl. 16:30 til 17:00

Lýsing

** Opið hús mánudaginn 2. mars frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Falleg og vel skipulögð 102,7 m2, 3-4ra herbergja íbúð á efri hæð með sérinngangi í fjórbýlishúsi við Leirutanga 21B í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 102,7 m2 og skiptist í forstofu, hol stofu og eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og geymslu. Frábær staðsetning á rólegum og fjölskylduvænum stað í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, sundlaug, líkamsrækt og golfvöll. Vinsælar gönguleiðir og útivistarsvæði eru í næsta nágrenni.
Endurbætur samkvæmt upplýsingum frá seljanda: 2006: Þakið endurnýjað. Í framhaldi af því var skipt um loftklæðningar í efri hluta íbúðarinnar og risherbergi endurnýjað. 2011: Sólpallur smíðaður. Skipt um gler í gluggum norðanmegin, þ.e. í herbergjum og baði. 2012: Eldhús endurnýjað, hannað og smíðað af Við og við. Nýtt parket í stofu. Rafmagn í stofu og eldhúsi endurnýjað. 2018: Ný innrétting í þvottahúsi. 2025: Nýr gluggi við útitröppur.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent

Nánari lýsing. 
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Hol er með flísum á gólfi.
Stofa er á neðri palli, opin við eldhús með parketi á gólfi. Mikil lofthæð er í rýminu. Útgengt er úr stofu á timburverönd til suðurs.
Eldhús með parketi á gólfi, eldhúsinnréttingu frá Við og við, bakaraofni, helluborði og viftu. Gert er ráð fyrir ísskáp og uppþvottavél í innréttingu. Flísar eru á veggjum milli eftir og neðri skápa.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er með parketi á gólfi og fataskápum. Innfeld lýsing er í rýminu.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 (risherbergi) er upp af holi, undir súð, með spónarparketi á gólfi. Opnanlegur þakgluggi er í rýminu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu með handlaug, gólfsalerni og baðkari með sturtuaðstöðu. Opnanlegur gluggi er á baðherbergi.
Þvottahús er inn af holi með flísum á gólfi og góðri innréttingu með handlaug og gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla er inn af risherbergi, undir súð.
Á lóðinni er ca. 5 m2 smáhúsi sem er nýtt sem köld geymsla.
Tvö bílastæði er við hlið hússins merkt íbúðinni.

Verð kr. 79.900.000,- 



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ