Opið hús: Hraunbær 110, 110 Reykjavík, Íbúð merkt: 07 02 01. Eignin verður sýnd mánudaginn 2. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Körfubolta og leikvöllur í sameiginlegum garði. Frábær staðsetning í þessu vinsæla hverfi þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, eins og skóla, leikskóla, líkamsrækt, sundlaug, verslanir og náttúruparadísina Elliðaárdal.
Nánari upplýsingar má fá hjá fasteigansala. Halldór Freyr Sveinbjörnsson - 6932916 - [email protected]
Nánari lýsing.
Hol/anddyri með fataskáp með rennihurðum.
Stofa-borðstofa er mjög rúmgóð með stórum gluggum til vesturs með fallegu útsýni. Útgengt er á góðar vestursvalir frá stofu.
Eldhús með fallegri hvítri innréttingu, með góðu skápaplássi og fallegri viðar borðplötu, innbyggð uppþvottavél, háfur og bakarofn í vinnuhæð. Innst í eldhúsi er góður borðkrókur við glugga.
Þvottahúsið er inn af eldhúsi. Hillur og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Opnanlegur gluggi.
Svefnherbergisgangur þar sem er skrifborðsaðstaða,
Tvö rúmgóð barnaherbergi.
Hjónaherbergi með góðum fataskáp.
Flísalagt baðherbergi með góðum innréttingum og baðkari með sturtuaðstöðu.
Sérgeymsla í kjallara ásamt hjóla og vagnageymslu. Sérhilla er í hjólageymslu fyrir dekk.
Góð blokk sem hefur verið gert mikið fyrir eins og að skipta um járn og pappa á þaki ásamt því að skipt var um alla glugga á austurhlið (svefnherbergjum og baðherbergi).
Húsið er að stórum hluta klætt með Steni (austurhlið).
Lóðin austan megin við húsið er sérlega barnavæn og falleg. Þar er grasflöt, fallegur trjágróður, leiktæki fyrir börn og bæði spark og körfuboltavöllur.
Mjög góð staðsetning og það er stutt í alla þjónustu, svo sem verslanir, skóla, leikskóla, sundlaug ofl.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður