Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1978
77 m²
3 herb.
1 baðherb.
2 svefnh.
Þvottahús
Sameiginl. inngangur
Opið hús: 4. mars 2026
kl. 12:15
til 12:45
Opið hús: Nýbýlavegur 102, 200 Kópavogur, Íbúð merkt: 01 01 01. Eignin verður sýnd miðvikudaginn 4. mars 2026 milli kl. 12:15 og kl. 12:45.
Lýsing
-Sérmerkt einkastæði
-Jarðhæð með sólpalli
-Gólfhiti á baði og í eldhúsi
-Sér þvottahús innan íbúðar
Íbúðin er skráð 77,0 fm samkvæmt HMS.
Skemmtileg þriggja herbergja eign í fallegu fjórbýli.
Snýr í suður og er einstaklega björt.
Vel skipulögð með stóru alrými og tveimur svefnherbergjum.
Baðherbergi og eldhús hafa verið uppgerð.
Húsið var tekið í gegn að utan árið 2018:
-Steinn sprunguviðgerður og málaður
-Þak þrifið og málað
-Gluggar yfirfarnir og málaðir
Í sameigninni var skipt um teppi og handrið á stigagangi og málað 2021.
Aðkoma að húsinu er snyrtileg og sameiginlegur garður afgirtur.
Nánari upplýsingar veitir:
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða [email protected]
Nánari lýsing:
Gengið er inn um sameiginlegan inngang. Anddyri er flísalagt og stigagangur nýlega teppalagður.
Íbúðin er strax til vinstri.
Þar er komið inn í parketlagða forstofu með voldugum fataskáp.
Inn af forstofu er parketlagður gangur og eldhús beint af augum.
Gólfhiti hefur verið lagður inn í eldhúsi sem er flísalagt og útbúið stílhreinni svartri innréttingu með viðar borðplötu.
Inn af eldhúsi er þvottahús með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, glugga með opnanlegu fagi sem snúa að garðinum og hilluplássi.
Til hægri er alrýmið og til vinstri er svefnherbergisálman og baðherbergi.
Hjónaherbergi er rúmgott með glugga sem snýr að garðinum. Það er parketlagt og með góðu skápaplássi.
Annað svefnherbergi er þar beint við hliðina, einnig parketlagt.
Baðherbergi er uppgert. Með gólfhita undir flísalögðu gólfi, baðkar með sturtuhaus, hvít vask innrétting, upphengdur speglaskápur og upphengt salerni.
Alrýmið er parketlagt og rúmar vel borðstofu og sjónvarpshol. Það flæðir inn í rúmgóðan og bjartan sólskála.
Úr sólskálanum er útgengt út á skjólgóðan sólpall sem snýr í suður.
Sameiginlegur garður er fyrir fjórbýlið.
Grunnskóli í hverfinu er í göngufæri ásamt leikskólum t.d. Fagrabrekku.
Skemmst er frá því að segja að allt sem Fossvogsdalurinn hefur upp á að bjóða - náttúra, útivist og leikvellir fyrir stóra og smáa er innan seilingar.
Körfuboltavellir, frisbee golf, tennisvellir, strandblak, leikvellir, aparóla og fleira.
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
22. okt. 2014
18.400.000 kr.
24.300.000 kr.
77.6 m²
313.144 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026