Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1958
36,1 m²
2 herb.
1 baðherb.
1 svefnh.
Þvottahús
Sérinngangur
Lýsing
Böðvar Sigurbjörnsson og Borg fasteignasala kynna til sölu: Rauðalækur 59, 105 Reykjavík. Mikið endurnýjuð íbúð á jarðhæð með sérinngangi á eftirsóttum stað í Laugarneshverfinu. Eignin er laus til afhendingar við undirritun kaupsamnings.
Nánari um eigina: Tveggja herbergja íbúð á jarðhæð í þríbýlishúsi merkt 00-01, birt stærð 36,1 m2. Eignin skiptist í anddyri, alrými með stofu og eldhúsi, baðherbergi og svefnherbergi. Að auki fylgir sér geymsla og hlutdeild í sameiginlegu þvottahúsi og þurrkherbergi. Á gólfum íbúðarinnar að undanskyldu baðherbergi er nýtt parket og er hiti lagður í gólf íbúðarinnar. Björt stofa með stórum glugga, inn af stofu er svefnherbergi. Ný eldhúsinnrétting með stórum vaski og svörtum blöndunartækjum. Helluborð í borðplötu og blástursbakaraofn, innbyggð uppþvottavél og hólf fyrir ísskáp. Baðherbergi með glugga sem er flísalagt hólf í gólf. Upphengt salerni með innbyggðum kassa, sturta og baðherbergisinnrétting undir handlaug.
Annað: Nýlega var lokið við að endurnýja íbúðina nánast frá grunni, ekki hefur verið búið í henni síðan. Snyrtileg aðkoma er að húsinu. Sameiginlegur garður, hellulögð verönd og snjóbræðsla í gönguleiðum. Yfirlit yfir framkvæmdir og viðhald : 2025 - íbúð endurnýjuð - skólplagnir endurnýjaðar og drenað, skipt um jarðveg, skipt út hellum í göngustíg og fyrir utan íbúð. Lagðar hitalagnir undir göngustíg og við dren, nýtt vatnsinntak frá veitum, nýtt torf á lóð að hluta til - 2024 - þak yfirfarið, þakplötur og eingangrun endurnýjaðar - 2023 - múrviðgerðir á húsi og gluggar endurnýjaðir.
Nánari upplýsingar veitir Böðvar Sigurbjörnsson, lögfræðingur M.L. og lgf., í síma 660-4777 eða [email protected]
Sjá einnig:
fastborg.is/
Smelltu hér til að fylgjast með mér á Facebook
Smelltu hér til að fylgja mér á Instagram
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. júl. 2019
20.050.000 kr.
24.900.000 kr.
36.1 m²
689.751 kr.
30. júl. 2007
8.340.000 kr.
10.800.000 kr.
36.1 m²
299.169 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026