Opið hús: Rauðarárstígur 24, 105 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 00 01. Eignin verður sýnd laugardaginn 28. febrúar 2026 milli kl. 13:30 og kl. 14:00.
Lýsing
Íbúðin sem er skráð 55 fm. skiptist í forstofugang, eldhús, stofu, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Gengið er inn í parketlagðan forstofugang, með góðu fatahengi. Eldhúsið er rúmgott með nýlegri L-laga innréttingu, gott skápapláss, ljúflokanir á skúffum, innbyggð uppþvottavél, flísar á gólfi. Stofan er parketlögð. Úr stofu er gengið inn í svefnherbergið, sem er parketlagt og með fataskáp. Baðherbergið er flísalagt, gólf og veggir, góð innbyggð sturta, upphengt salerni og vaskur í innréttingu með skúffum.
Sameiginlegt þvottahús er við hlið íbúðar. Útgengt er úr þvottahúsi út í sameiginlegan garð til suð-vesturs garðurinn er fallega gróinn og með timburpalli.
Sérgeymsla íbúðar er inn af sameign, geymsla er skráð 1,3 fm. en er stærri að gólffleti þar sem hún er að hluta til undir stiga.
Húsið og íbúðin sjálf hafa fengið gott viðhald undanfarin ár.
Ytra byrði og sameign:
Húsið sjálft hefur verið töluvert yfirfarið, meðal annars endursteinað árið 2020.
Frá árinu 2017 hefur þak verið yfirfarið, ásamt þakkanti og skipt um rennum meðfram húsinu.
Einnig voru gluggar yfirfarnir og skipt um karma og/eða gler eftir þörfum.
þá var sameign einnig teppalögð og máluð.
Íbúðin sjálf hefur verið töluvert endurnýjuð meðal annars nýtt eldhús og innihurðar 2018 og baðherbergi endurnýjað 2020.
Spennandi eign í hjarta Reykjavíkur sem hlotið hefur töluvert viðhald, tilvalin fyrstu kaup.
Nánari upplýsingar veitir Guðbjörg Guðmundsdóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 8995533, tölvupóstur [email protected].
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.