Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Maack Gunnarsson
Svanþór Einarsson
Theodór Emil Karlsson
Steingrímur Benediktsson
Vista
fjölbýlishús

Ástu-Sólliljugata 22

270 Mosfellsbær

139.900.000 kr.

717.436 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2314266

Fasteignamat

111.800.000 kr.

Brunabótamat

99.100.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 2015
svg
195 m²
svg
4 herb.
svg
2 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Bílskúr
Opið hús: 5. mars 2026 kl. 17:00 til 17:30

Lýsing

** Opið hús fimmtudaginn 5. mars frá kl. 17:00 til 17:30 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - [email protected] eða 862-9416 **

Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Glæsileg og mikið endurnýjuð 195 m2, 4ra herbergja íbúð/hæð í fjórbýlishúsi með bílskúr og fallegu útsýni við Ástu-Sólliljugötu 22 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 195,0 m2, þar af íbúð 149,3 m2, bílskúr 31,7 m2 og geymsla 14,0 m2. Eignin skiptist í forstofu, stofu/borðstofu, eldhús, gang, þrjú svefnherbergi, tvö þeirra með fataherbergi, baðherbergi og gestasalerni. Innangengt er í bílskúr úr forstofu. Sérgeymsla á jarðhæð fylgir eigninni. Gott skipulag, vönduð gólfefni og fallegar innréttingar. Frábær staðsetning í rólegu og fjölskylduvænu hverfi í Helgafelli. Stutt í skóla og vinsælar gönguleiðir í ósnortri nátturinni. Eignin nýtur víðáttumikils útsýnis yfir Mosfellsbæ og fallegrar fjallasýnar til Bláfjalla og Esju. Víðsýnið skapar sterka heildarupplifun sem nýtur sín jafnt í dagsbirtu sem og þegar kvöldkyrrðin tekur við.

Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax


Nánari lýsing:
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp. Innangengt er í bílskúr úr forstofu.
Stofa, borðstofa og eldhús mynda alrými eignarinnar með mikilli lofthæð og stórum gluggum sem gera rýmið bjart og fallegt. Rafdrifin gluggatjöld auðvelda birtustýringu í stofu. Eldhúsið er klætt Calacatta Gold Marble Quartz steini á eyju, borðplötum, tækjaskáp og milli skápa sem gefur rýminu tímalausan og fágaðan svip. Falleg hvít háglans eldhúsinnrétting með góðu skápaplássi. Innbyggð og vönduð heimilistæki, þar á meðal spanhelluborð, veggofn með sjálfhreinsun, innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Stofan er hlýleg og stílhrein með rafmagnseldstæði frá Funa. Fyrir ofan eldstæðið er sérsmíðaður sjónvarpsveggur sem rammar rýmið fallega inn. Úr stofu er útgengt á svalir til suðurs.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með góðu fataherbergi, teppi frá Parka á gólfi og útgengi á svalir til suðurs. Fataherbergið var áður svefnherbergi. Opnað hefur verið inn í hjónaherbergið og lokað fyrir hurðargat á gangi. Auðvelt væri að breyta aftur í fjórða svefnherbergið.
Svefnherbergi 2 er mjög rúmgott með Quick-Step harðparketi á gólfi og fataherbergi. Á teikningu er gert ráð fyrir að herbergið sé hjónaherbergi.
Svefnherbergi 3 er Quick-Step harðparketi á gólfi.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og veggjum, innréttingu, handlaug baðkari, sturtu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Gangur er með Quick-Step harðparketi á gólfi.
Gestasalerni er flísalagt í hólf og gólf með innréttingu, handlaug og upphengdu salerni.
Bílskúr er rúmgóður með epoxy á gólfi. Aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara er í bílskúr.
Sérgeymsla er á jarðhæð, skráð 14 m2.

Verð kr. 139.900.000,-



Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.

img
Svanþór Einarsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Fasteignasala Mosfellsbæjar
Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone
img

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
29. jan. 2025
102.150.000 kr.
117.500.000 kr.
10202 m²
11.517 kr.
8. mar. 2016
35.750.000 kr.
41.800.000 kr.
195 m²
214.359 kr.
22. des. 2015
22.500.000 kr.
39.500.000 kr.
357 m²
110.644 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Fasteignasala Mosfellsbæjar

Fasteignasala Mosfellsbæjar

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ
phone

Svanþór Einarsson

Þverholti 2, 270 Mosfellsbæ