Lýsing
Miklaborg kynnir: Falleg og sjarmerandi 2ja herbergja íbúð á 3. hæð með einkabílastæði á baklóð hússins. Íbúðin hefur nánast öll verður endurnýjuð og endurhönnuð að innan og skipulagi breytt. Heildarstærð er 96,6 fm með stórri geymslu sem fylgir. Björt og falleg íbúð í hjarta Reykjavíkur með sér bílastæði.
Nánari lýsing: Allir innviðir svo sem innréttingar, gólfefni, raftæki og annað var endurnýjað á árunum 2021-2022 á mjög glæsilegan hátt, jafnframt var skipulagi íbúðar breytt frá upphaflegir teikningu. Komið inn í hol með fataskápum, annar innbyggður skápur í holi með aðstöðu fyrir þvottavél og þurrkara. Stofa og eldhús snúa út á götu en þar má finna glæsilegt eldhús með nýlegum tækjum, flísalagt fyrir ofan borðplötu og aðstöðu fyrir tvöfaldan ísskáp, borðstofa og stofa eru í sama rými. Rúmgott baðherbergi með sturtuklefa og baðkari, flísar á gólfi og hluta veggja, upphengt salerni og skápur. Svefnherbergi snýr út á baklóð, það er mjög rúmgott með fataskápum og útgengi út á svalir. Möguleiki væri á að skipta herberginu í tvö minni herbergi(sjá teikningu í kynningu). Gólfefni er harðparket nema flísar á baðherbergi. Sér geymsla í kjallara er 30,6 fm. Sérlega fallegt stigahús er í húsinu en útgengi er úr því út á baklóð en þar eru sér bílastæði fyrir húsið og fylgir eitt stæði með íbúðinni. Aðkoma að bílastæðum er um Laugaveg í gegnum undirgöng.
Upplýsingablað seljenda um ástand eignarinnar og húsfélagsyfirlýsingu er hægt að nálgast hjá fasteignasölunni.
Mikið endurnýjuð miðbæjaríbúð með einkabílastæði!
Nánari lýsing Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltur fasteignasali í síma 697 9300 eða [email protected]