Lýsing
Smelltu hér til að senda kynningarbækling með öllum helstu upplýsingum.
Um er að ræða fjölskylduvænt heimili með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, glæsilegri og bjartri stofu með aukinni lofthæð, nýlegu eldhúsi og bílskúr. Stutt er í fallegar gönguleiðir og náttúru, aðeins um 100 metra frá húsinu.
Viðhald og endurbætur:
- Skipt um allt gler nema í opnanlegum fögum á vesturhlið.
- Allir gluggar úr herbergjum og stofu út í garð nýlegir.
- Allar raflagnir endurnýjaðar, ný tafla, rofar og tenglar.
- Þakjárn og þakpappi endurnýjað árið 2019.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi og fatahengi.
Stofa: Einstaklega tignarleg og björt stofa með aukinni lofthæð og miklu rými. Flísar á gólfi. Í beinu framhaldi er sólskáli með parketi á gólfi, arni og útgengi út á verönd og garð.
Hol / sjónvarpsrými: Rúmgott hol á milli stofu og svefnálmu sem nýtist vel sem sjónvarpshorn eða fjölskyldurými.
Eldhús: Snyrtileg hvít Hágland eldhúsinnrétting með mjög góðu skápa- og vinnuplássi. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. Tveir bökunarofnar í vinnuhæð, spanhelluborð og vifta.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum og útgengi út á verönd.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi með parket á gólfum og fataskápum.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi með parket á gólfum og fataskápum.
Svefnherbergi 4: Minna herbergi með máluðu gólfi.
Baðherbergi 2: Flísalagt í hólf og gólf, flísalögð sturta, innrétting við vask og handklæðaofn.
Þvottahúsi: Flísalagt gólf, tengi fyrir tvær þvottavélar og þurrkara. Útgengt út í garð.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr og geymsla inn af honum.
Lóð og staðsetning:
Stór og rúmgóð 1.200 fm lóð. Frábær staðsetning í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, þjónustu og einstaka náttúru Hveragerðis. Gönguleiðir og útivistarsvæði í um 100 metra fjarlægð.
Annað: Húsið er almennt í góðu ástandi. Skipta þarf um klæðningu á bílskúrshlið inn í garð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður