Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Heiðar Pálsson
Helen Sigurðardóttir
Hrafnkell Pálmarsson
Ingibjörg Reynisdóttir
Vista
hæð

Byggðarendi 19

108 Reykjavík

109.900.000 kr.

829.434 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2035722

Fasteignamat

100.850.000 kr.

Brunabótamat

67.850.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1972
svg
132,5 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur

Lýsing

Pálsson Fasteignasala kynnir:


Falleg og björt 5 herbergja neðri hæð í góðu tvíbýli með sérinngangi og stórum palli í vinsælu hverfi að Byggðarenda 19, 108 Reykjavík.
Húsið er hannað af Kjartani Sveinssyni.

* 4 rúmgóð svefnherbergi
* Stór lokaður suður pallur.
* Sérinngangur .
* Sér bílastæði sem er hellulagt og upphitað.


Eignin er skráð samkvæmt Þjóðskrá Íslands 132.5 fm allir fermetrar eru innan eignarinnar.
Fasteignamat 2026 er 100.850.000 mkr.

Nánari upplýsingar
Inga Reynis lgf í síma 8201-1903,  [email protected] og 
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000, [email protected]
www.eignavakt.is
www.verdmat.is
Góð ráð fyrir kaupendur

Eignin skiptist í forstofu, sjónvarpshol, stofu, 4 svefnherbergi, eldhús, baðherbergi, geymslu og þvottahús.

Nánari lýsing eignar:

Gengið er niður hellulagðar tröppur norðan megin við húsið, hiti í tröppum.
Forstofa er mjög rúmgóð með fataskáp,  fallegum flísum og hita í gólfi. 
Stofa og borðstofa er í sameiginlegu rými sem er mjög bjart og parket á gólfi.
Hjónaherbergi rúmgott með góðum fataskáp, parket á gólfi.
Barnaherbergi mjög rúmgott með parket á gólfi.
Barnaherbergi rúmgott, með fataskáp, útgengt er út í garðinn og parket á gólfi.
Sjónvarpshol er í alrýminu með parket á gólfi.
Eldhús er með eldri innréttingu, borðkrók og dúk á gólfi.
Úr eldhúsinu er gengið inn í sameign með sér geymslu og sameiginlegu þvottahúsi.
Barnaherbergi stórt með fataskáp og parket á gólfi.
Baðherbergi er með góðri innréttingu, baðkari og sturtu. Flísar á gólfi.
Sérgeymsla er inn í íbúðinni.
Stór afgirtur garður með palli og hellulagðri verönd.
Sér bílastæði sem er hellulagt og upphitað.
Tvennir skúrar eru á lóðinni annar er 15 fm einangraður og upphitaður með rafmagnsofn.
Hinn er kaldur skúr sirka 8 fm.
Nýleg göngu/hjólreiðastígur fyrir neðan húsið sem liggur í báðar áttir.

Framkvæmir sem hafa verið gerðar á eigninni undanfarið að sögn seljenda.
  • 2024 Þak og  bárujárn á upphækkaða hluta þaksins yfirfarið og málað
  • 2024 Garður - Rafmagnstafla sett upp í garðskúr og ljósum bætt við skjólvegg og rafmagnstenglar settir upp í garðinum. Sorpskýli sett upp fyrir eignina við innkeyrsluna.
  • 2022  Framkvæmdir í garði var settur upp skjólveggur, pallur og garðhús (15 fm með tvöfaldri hurð). Tvær hurðir út úr garðinum - Önnur stærri til að koma vagni út um hliðið.. Ídráttarrör til staðar frá þvottahúsi  út í garð til að auðvelda uppsetningu á heitum potti.
  • 2020-2022 var skipt um blöndunartæki og skipt um innréttingu og vask einnig var málað.
  • 2019 var forstofan tekin í gegn  - Skipt um gólfefni, settur hiti í gólf (tengt ofni) ásamt nýjum skápum.
Vel skipulögð eign miðsvæðis í Reykjavík þar sem stutt er í alla helstu þjónustu og fallegar gönguleiðir í Elliðár- og Fossvogsdalnum. 
Íþróttasvæði Víkings í göngufæri og góðar samgöngur bæði fyrir hjól og bíla.

Nánari upplýsingar
Inga Reynis lgf í síma 8201-1903,  [email protected] og 
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000, [email protected]
 

Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. sep. 2019
54.700.000 kr.
59.100.000 kr.
132.5 m²
446.038 kr.
19. feb. 2015
35.050.000 kr.
39.000.000 kr.
132.5 m²
294.340 kr.
8. feb. 2013
29.150.000 kr.
35.000.000 kr.
132.5 m²
264.151 kr.
4. jún. 2008
28.720.000 kr.
31.000.000 kr.
132.5 m²
233.962 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Pálsson Fasteignasala

Pálsson Fasteignasala

Borgartúni 3, 105 Reykjavík