Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sverrir Kristinsson
Kjartan Hallgeirsson
Guðlaugur Ingi Guðlaugsson
Daði Hafþórsson
Gunnar Helgi Einarsson
Gunnar Bergmann Jónsson
Jenný Sandra Gunnarsdóttir
Upplýsingar
svg
Byggt 1949
svg
224,5 m²
svg
7 herb.
svg
2 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús

Lýsing

Eignamiðlun kynnir:

Einstakt einbýlishús með aukaíbúð við Nýlendugötu í gamla Vesturbænum. Húsið, sem er aðalhæð, kjallari og ris, er skráð 224,5 fermetrar í fasteignaskrá en þar af er íbúð í kjallara um 60 fermetrar. Raunverulegur gólfflötur húss er eitthvað meiri þar sem risið er að mestu undir súð. Einstakt útisvæði allt í kringum húsið, ásamt bílastæði, er á afgirtri 391 fermetra lóð hússins. Staðsetningin er frábær, skammt frá miðbænum og nærri Grandanum með fjölda veitingastaða og örskammt frá Hygge, vinsælasta kaffihúsi bæjarins. Verulegt tækifæri fyrir réttan aðila.

Allar upplýsingar veitir Ólafur H. Guðgeirsson, MBA, lgfs., í síma 663-2508 eða [email protected] sem einnig sýnir eignina.
Hringið eða sendið tölvupóst og bókið skoðun.


Aðkoma hússins er frá bílastæði nokkuð frá götunni, en þar eru tröppur upp að aðalinngangi. Athygli vekur að við innganginn er merki sem á stendur „Brunnastígur 5“ en það var áður staðfang hússins, sem nú er Nýlendugata 26. Þegar gengið er inn, er komið inn í flísalagt anddyri þaðan sem gengið er í miðrými hæðarinnar, en úr miðrými er gengið í öll önnur rými – eldhús, baðherbergi, stofu og vinnustofu. Eldhús er stórt, með stórri innréttingu á heilum vegg, svörtum og hvítum dúkflísum á gólfi og plássi fyrir stórt matarborð. Úr eldhúsi eru dyr út á afgirta suður-verönd þar sem er gott skjól og sólríkt á sumrin. Á hæðinni eru tvær stórar stofur. Suður-stofan er hlýleg og björt með parketi á gólfi. Stofunni má hæglega breyta í svefnherbergi. Vinnustofan, í viðbyggingu frá miðrými, er með parket á gólfi, stóra og bjarta glugga í tvær áttir og mikla lofthæð. Baðherbergið sem einnig er út frá miðrými er með baðkari og sturtuaðstöðu, flísum á gólfi og veggjum, handklæðaofni og lítilli innrétting með vaski.
Í enda miðrýmis er stigahús, með stórum og björtum glugga til suðurs sem veitir birtu inn í bæði hæðina og risið. Í risinu eru tvö stór svefnherbergi og litlar geymslur. Í hjónaherberginu eru innbyggðir fataskápar sem ná undir súð. Á gólfum eru lakkaðar fjalir sem gefa skemmtilega áferð.
Í kjallara er auka íbúð, um það bil 55 fermetrar, með sér inngangi. Stofa og eldhús eru í einu opnu rými. Eitt rúmgott svefnherbergi. Sér baðherbergi með sturtu.
Í kjallara er einnig þvottahús og stórt geymslurými sem hægt er að komst í frá fyrstu hæð hússins.  
Húsið var flutt úr Laugardalnum á 9. áratugnum og því er sökkull og allar lagnir frá þeim tíma. Byggingarleyfi var gefið fyrir steyptri vinnustofu með torfþaki ásamt timburpalli og svölum. Vinnustofan telst eignarhluti íbúðarhúss. Endurnýja þarf leyfið. Á teikningavef Reykjavíkurborgar er húsið enn skráð undir Brunnastíg 5, en götuheitinu hefur nú verið breytt.

Núverandi eigendur hafa átt húsið frá aldamótun. Á þeim tíma hafa þau innréttað kjallarann og skipt honum í sér íbúð, geymslur og þvottahús, og gert lóðina í þeirri mynd sem hún er núna.

Mjög sérstök, afar notaleg og frábærlega staðsett eign. Frábær kaup sem býður uppá ýmsa möguleika.

Kostnaður kaupanda af kaupum:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er fyrir einstaklinga 0,8% af heildarfasteignamati eignar. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi fyrir lögaðila er 1,6% af heildarfasteignamati eignar.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, veðleyfi og mögulega fleiri skjölum - kr. 2.500 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu samkvæmt kaupendasamningi.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu seljanda samanber 26.gr. laga nr.40/2002 um fasteignakaup og 25.gr. laga nr.26/1994 um fjöleignarhús. Eignamiðlun fasteignasala bendir fasteignakaupendum á ríka skoðunarskyldu kaupenda sem kveðið er á í lögum um fasteignakaup nr.40/2002. Kaupanda er bent á að nýta sér þjónustu fagmanna við skoðun fasteigna, en mælt er með því að kaupendur fasteigna fái óháðan fagaðila til að framkvæma formlega ástandsskoðun á eignum sem gert er tilboð í.
Eignamiðlun fasteignasala | Grensásvegur 11 | 108 Reykjavík | Sími 588 9090 | www.eignamidlun.is

***
Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum. 

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík
Eignamiðlun

Eignamiðlun

Grensásvegi 11, 108 Reykjavík