Lýsing
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: 222,4 m2 einbýlishús á einni hæð ásamt auka 3ja herbergja íbúð í bílskúr við Víðiteig 30 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 222,4 m2 en þar af íbúð 176,0 m2 og bílskúr 46,4 m2. Aðal íbúðin skiptist í forstofu, gang, borðstofu, stofu, eldhús, búr, baðherbergi, gestasnyrtingu, 4 svefnherbergi, geymslu/þvottahús. Í bílskúr hefur verið útbúin auka íbúð sem skiptist í forstofu, baðherbergi, tvö svefnherbergi, stofu og eldhús. Timburverönd í suðvestur átt. Góð staðsetning innst í botnlanga miðsvæðis í Mosfellsbæ, stutt í skóla, verslanir, heilsugæslu og alla þjónustu. Stutt er í náttúruna og fallegar gönguleiðir, útivistarsvæði við Varmá og Úlfarsfell.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent
Nánari lýsing:
Aðal íbúð:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Gestasnyrting er með flísum á gólfi, salerni og skolvask.
Þvottahús er með flísum á gólfi. Tengi er fyrir þvottavél og þurrkara. Úr þvottahúsi er aðgengi að geymslulofti.
Svefnherbergi nr. 1-4 eru með parketi á gólfi og fataskápum í öllum herbergjum nema einu.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, vegghengdu salerni, 'walk in' sturtu, handklæðaofni og innréttingu með skolvaski.
Eldhús er með innréttingu og flísum á gólfi. Í innréttingu er helluborð, ofn, vaskur og innbyggð uppþvottavél. Inn af eldhúsi er búr.
Stofa og borðstofa er með flísum og parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á timburverönd í suðvesturátt.
Bílskúr:
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Baðherbergi er með flísum á gólfi, innréttingu með skolvask, salerni, handklæðaofni og sturtu. Tengi er fyrir þvottavél inn á baði.
Svefnherbergi nr. 1-2 eru með parketi á gólfi.
Eldhús er með parketi á gólfi og innréttingu. Í innréttingu er ofn, helluborð, háfur og vaskur. Gert er ráð fyrir uppþvottavél og ísskáp í innréttingu.
Stofa er með parketi á gólfi.
Verð kr. 134.900.000,-
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala Mosfellsbæjar skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar - er skv. gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.