Opið hús: Hrísholt 10, 210 Garðabær. Eignin verður sýnd fimmtudaginn 26. mars 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 272,5 fm. og þar af er innbygður bílskúr skráður 51,4 fm.
Neðri hæð: Forstofa/anddyri, hol með steyptum stiga, baðherbergi með gufu, þvottahús, geymsla og innbyggður tvöfaldur bílskúr.
Efri hæð: Alrými, stofur, eldhús, þrjú herbergi, tvö baðherbergi og útsýnis svalir.
Nánari lýsing neðri hæðar:
Forstofa er flísalögð með skáp. Innangengt er í bílskúrinn úr forstofunni.
Hol með steyptum stigi upp á efri hæðina, teppi á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, gufubaði og salerni. Flísar á gólfi og hluti veggja.
Þvottahús rúmgott með glugga, vaskur og steinn á gólfi.
Geymsla rúmgóð með glugga sem hægt væri að nýta sem herbergi.
Bílskúr er með tvennum innkeyrsluhurðum, hliðargluggar og er innangengt í hann úr forstofunni alls 51,4 fm.
Nánari lýsing efri hæðar:
Sofa og borðstofa rúmgóðar og bjartar með miklu útsýni, frístandandi arinn og teppi á gólfi. Útgengt er út á stórar svalir með miklu útsýni úr stofunni.
Eldhús með upprunalegri innréttingu, eldavél, eldhúskrókur og vínilflísar með kork áferð á gólfi. Inn af eldhúsi er búr.
Búr með innréttingu, gluggar og dúkur á gólfi.
Hjónasvíta með rúmgóðu hjónahebrergi, fataherbergi og baðherbergi.
Hjónaherbergi rúmgott með gluggum á tvo vegu og parket á gólfi.
Fataherbergi er með opinni innréttingu og parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtu, vaskur, salerni, gluggi og flísalagt í hólf og gólf.
Svefnherbergi II með parketi á gólfi.
Svefnherbergi III er í dag opið með parketi. Auðvelt er að setja vegg og hurð til að nýta það sem svefnherbergi.
Baðherbergi mjög gúmgott með baðkari, tvennum vöskum, gluggar, salerni, skolskál og flísar á gólfi, marmari á veggjunum.
Tenging hefur átt sér stað á Hnoðraholtsbraut við Arnarnesveg í Kópavogi sem hefur í för með sér mjög góðar samgöngur. Stutt göngufæri er niður í Hofstaðaskóla og FG. Fjölnota íþróttahús í Vetrarmýrinni er í næsta nágrenni og hafin er mikil stækkun á íbúðahverfinu í Hnoðraholti.
Allar nánari upplýsingar veitir Kristján Baldursson hdl. og löggiltur fasteignasali í síma 8673040 og á netfangið [email protected] eða Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 og á netfanginu [email protected]
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.