Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Vista
fjölbýlishús

Hringbraut 45

101 Reykjavík

62.900.000 kr.

843.164 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2027296

Fasteignamat

62.800.000 kr.

Brunabótamat

36.700.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1942
svg
74,6 m²
svg
3 herb.
svg
1 baðherb.
svg
2 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur
svg
Svalir

Lýsing

Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð, 74,6 fm, á 3. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur með útleigueiningu.


Falleg, björt og vel skipulögð 3ja herbergja íbúð, 74,6 fm, á 3. hæð í snyrtilegu fjölbýlishúsi í Vesturbæ Reykjavíkur. Íbúðin er í göngufæri við Háskólann og miðbæinn. Í risi er aukaherbergi með aðgangi að sameiginlegu salerni á 5.hæð.

Forstofan er rúmgóð og á gangi er góð geymsla. Baðherbergi er til vinstri við inngang, með baðkari og sturtu, tengi fyrir þvottavél og flísalögðum veggjum. Gluggi á baði gefur góða birtu.
Stofan er björt og rúmgóð. Svefnherbergi er stórt með fataskáp og þaðan er útgengt út á suðursvalir. Eldhús sett upp 2018.

Í risi er annað herbergi með aðgengi að snyrtingu og er það nú í útleigu.
Í kjallara er rúmgóð sérgeymsla ásamt sameiginlegri vagna- og hjólageymslu. Sameiginlegt þvottahús og þurrkaðstaða eru í húsinu.
Baklóðin er stór með góðum malbikuðum bílastæðum sem tilheyra húsinu. Einnig er inngangur í húsið bakatil.

Húsið hefur verið töluvert endurnýjað að utan á síðustu árum.

Viðhaldssaga:
2018: Rafmagnstafla endurnýjuð, frárennslislagnir endurnýjaðar
2018: Ný eldhúsinnrétting og baðinnréttingar
2022: Parket í risi endurnýjað
2022: Þak yfirfarið og málað, nýir þakgluggar
2023: Viðgerðir á múr, nýir gluggar og svalahurðir í öllum íbúðum, nýjar bakdyr, útidyrahurð að framan lagfærð og lökkuð
2023: Nýjar neysluvatnslagnir
2023: Nýjar flísar í sturtu
2025: Nýr dyrasími á stigagangi

Íbúðin er í útleigu og skilar góðum leigutekjum.

Frekari upplýsingar um eignina veitir Sigurður Páll í tölvupósti: [email protected]


Finndu frekari upplýsingar um eignina á www.e-fasteignir.is
- Söluyfirlit
- Senda fyrirspurn
- Tilboðsgerð



Vegna auglýsingar á vefsvæðinu fasteignir.is:
Eigendur auglýsa eign sína sjálfir án milligöngu og finna til kaupendur. Eigendur tryggja að löggiltur fasteignasali (eða aðili með löggildingu til að annast milligöngu um sölu fasteigna og skipa) annist milligöngu þegar kemur að kauptilboði og / eða kaupsamningsgerð vegna auglýsingar á vefsvæði Vísis (fasteignir.is). Þessi aðili mun þá sjá um skjalagerð, þ.m.t. söluyfirlit, kauptilboð, kaupsamning, veðleyfi og afsal, eftir því sem við á hverju sinni, og sjá um að annast viðskiptin í samræmi við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Þannig er tryggt að varnir gegn peningaþvætti séu virtar og að réttarstaða kaupanda og seljanda er glögg.

Eigendur geta nýtt sér umrædda þjónustu hjá samstarfsaðila e-fasteigna, PRIMA fasteignasölu, en það er ekki skilyrði fyrir notkun kerfisins og stendur aðilum aðeins til boða ef hún hentar öllum hlutaðeigandi.
Verðskrá þjónustunnar er aðgengileg á vef e-fasteigna.

e-fasteignir | Fasteignakerfi

e-fasteignir | Fasteignakerfi

Bjarkarás 3a, 210 Garðabær
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. okt. 2018
31.400.000 kr.
35.900.000 kr.
74.6 m²
481.233 kr.
27. nóv. 2012
15.550.000 kr.
19.800.000 kr.
74.6 m²
265.416 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
e-fasteignir | Fasteignakerfi

e-fasteignir | Fasteignakerfi

Bjarkarás 3a, 210 Garðabær
phone