Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Sveinn Sigurðsson
Björn Davíðsson
Vista
fjölbýlishús

Langahlíð 6 íbúð 201

603 Akureyri

83.500.000 kr.

443.913 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2148551

Fasteignamat

70.300.000 kr.

Brunabótamat

80.660.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1968
svg
188,1 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Bílskúr
svg
Útsýni
svg
Sérinngangur

Lýsing

Fasteignasalan Hvammur 466 1600

Langahlíð 6 íbúð 201 - Skemmtileg 5-6 herbergja efri hæð með sér inngangi og bílskúr í fjórbýlishúsi á vinsælum stað í Glerárhverfi - stærð 188,1 m²


Eignin skiptist í forstofu, stigapall, eldhús, sjónvarpshorn, stofu og borðstofu, gang, fjögur svefnherbergi og baðherbergi. Í kjallaranum er herbergi/geymsla.

Forstofa og stigapallur eru með gráum flísum á gólfi og á stiga er grátt teppi. Á stigapallinum er stór fataskápur. 
Eldhús var endurnýjað árið 2014. Sérsmíðuð hvít sprautulökkuð innrétting og eyja frá Tak innréttingum með flísum á hluta veggja. AEG span helluborð og ofn.
Sjónvarpshorn er með ljósu harðparketi á gólfi og stórum glugga til vesturs. 
Stofa og borðstofu eru í opnu rými, þar er ljóst harðparket á gólfi og stórir gluggar til suður og vesturs og hurð út á rúmgóðar suðvestur svalir sem voru stækkaðar fyrir nokkrum árum.
Gangur er með ljósu harðparketi á gólfi og hvítum fataskápum. 
Svefnherbergin eru fjögur, þrjú barnaherbergi, öll með ljósu harðparketi á gólfi og eitt með fataskáp og svo hjónaherbergi með fataherbergi inn af.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2016. Þar eru flísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting, upphengt wc, handklæðaofn, sturta og opnanlegur gluggi. Tengi eru fyrir þvottavél og þurrkara inn á baðherberginu. 
Í kjallaranum er herbergi/geymsla með dúk á gólfi og opnanlegum glugga.  
Bílskúr er skráður 28 m² að stærð. Þar er lakkað gólf og út í hann liggur rafmagn en ekkert rennandi vatn. Hann er kynntur með lausum rafmagnsofni í dag. Fyrir framan er steypt og hellulagt bílaplan.

Annað
- Baðherbergi, gólfefni í forstofu og á stig og innihurðar var endurnýjað árið 2016. Þá voru inntök endurnýjuð og hluti af bílaplani og stétt hellulagt.
- Frárennslislagnir hafa verið endurnýjaðar.
- Eldhús var endurnýjað árið 2014.
- Pappi á þaki var endurnýjaður fyrir nokkrum árum. Hitakapall var settur í þakrennu árið 2023.
- Húsið var málað að utan sumarið 2020.
- Stutt í ýmsa þjónustu, verslun, skóla og leikskóla.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
13. okt. 2021
42.150.000 kr.
57.500.000 kr.
188.1 m²
305.688 kr.
27. apr. 2012
20.650.000 kr.
22.000.000 kr.
188.1 m²
116.959 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Hvammur Fasteignasala

Hvammur Fasteignasala

Hafnarstræti 19, 600 Akureyri
phone