Upplýsingar
Verðsaga
Byggt 1923
141,6 m²
4 herb.
1 baðherb.
3 svefnh.
Bílskúr
Sameiginl. inngangur
Lýsing
Valný fasteignasala og Valgeir Leifur löggiltur fasteignasali kynna:
Norðurstígur 3, 101 Reykjavík
Fjögurra herbergja íbúð á annarri hæð á vinsælum stað í miðbæ Reykjavíkur. Eigninni fylgir bílskúr með sérinngangi sem hefur verið innréttaður sem stúdióíbúð ásamt samþykktu erindi um uppbyggingu ofan á húsið, hæð og ris, fyrir tvær íbúðir, samtals um 130 m². Burðarþolshönnun liggur fyrir og gatnagerðargjöld hafa verið greidd. Bílastæði við hlið bílskúrs fylgir eigninni.
Samkvæmt fasteignaskrá HMS er eignin skráð samtals 141.6 m², þar af er íbúðarrými 73,9 m², tvær geymslur 32 m², stigahús 9,7 m² og bílskúr 26,0 m².
Eign merkt 02-01, fastanúmer 200-0536 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.
Lýsing eignar:
Eldhús er með plastparketi, hvítri innréttingu, bakaraofni og keramik helluborði.
Stofa er björt með plastparketi, loftlistum og hvítmáluðum panel í lofti.
Svefnherbergi I er innangengt frá eldhúsi með viðarparketi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi II er rúmgott með viðarparketi og útgengi á svalir.
Svefnherbergi III er með plastparketi.
Baðherbergi er með baðkari, sturtuaðstöðu og dúk á gólfi.
Í kjallara eru tvær geymslur sem tilheyra eigninni, samtals um 32 m².
Bílskúrinn hefur verið innréttaður sem stúdíóíbúð með sérinngangi og er á sama hita- og rafmagnsmæli og aðalíbúðin.
Byggingarlýsing:
Húsið er steinsteypt, byggt árið 1923 og er kjallari og tvær hæðir. Húsið stendur á eignarlóð. Sér mælir er fyrir hitaveitu og rafmagni í íbúðinni. Bílskúr er steinsteyptur, byggður árið 1992. Hann var innréttaður sem stúdíóíbúð árið 2016. Skráð stærð bílskúrs er 26,0 m².
Byggingarréttur:
Fyrir liggur samþykkt erindi byggingarfulltrúa vegna uppbyggingar ofan á núverandi hús, hæð og ris, sem gerir ráð fyrir tveimur íbúðum, samtals um 130 m². Samkvæmt fundargerð byggingarfulltrúa frá 1. júlí 2025 var erindið samþykkt með því skilyrði að ný eignaskiptayfirlýsing verði gerð áður en byggingarleyfi verður gefið út. Burðarþolshönnun liggur fyrir og gatnagerðargjöld hafa verið greidd.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Valgeir Leifur / Löggiltur fasteignasali / 780-2575 / [email protected]
Ertu að leita að nýbyggingum? Skoðaðu úrvalið hjá Valný – smelltu hér.
Ertu að hugsa um að selja? Smelltu hér og fáðu frítt verðmat.
Ekki missa af draumaeigninni – fylgstu með okkur á Instagram og Facebook
Lestu reynslusögur frá ánægðum viðskiptavinum okkar.
- Fasteignasalan sem opnar dyrnar að þinni eign.
Valný fasteignasala | www.valny.is | Reykjanesvegi 40, 260 Reykjanesbær | Opið alla virka daga frá 9:00-16:00

Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
15. jún. 2022
65.800.000 kr.
84.000.000 kr.
141.6 m²
593.220 kr.
30. mar. 2016
43.400.000 kr.
51.000.000 kr.
141.6 m²
360.169 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026