Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Sigurður Samúelsson
Andri Sigurðsson
Sveinn Eyland
Ingibjörg Agnes Jónsdóttir
Guðrún Diljá Lúðvíksdóttir
Monika Hjálmtýsdóttir
Júlíus Jóhannsson
Freyja Rúnarsdóttir
Jón Óskar Karlsson
Davíð Matthíasson
Erla Friðriksdóttir
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1946
svg
111,2 m²
svg
5 herb.
svg
1 baðherb.
svg
4 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sérinngangur
Opið hús: 31. mars 2026 kl. 12:00 til 12:30

Opið hús að Barmahlíð 12, 105 Reykjavík þriðjudaginn 31. mars 2026 á milli kl. 12:00 og kl. 12:30.

Lýsing

LANDMARK Fasteignamiðlun og Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali (s:694-4112 / [email protected]) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:
Mikið endurnýjuð og vel skipulögð 5 herbergja íbúð með sérinngangi og útgengt á suðursvalir úr eldhúsi og þaðan niður í garð í eftirsóttu hverfi við Barmahlíð 12 í Reykjavík.  
*Gluggar endurnýjaðir  *Hús múviðgert og málað  *Eldhús endurnýjað  *Baðherbergi endurnýjað  *4 svefnherbergi


Eignin er skráð 111,2 fm skv HMS sem skiptist í íbúð 104,1 fm og tvær geymslur 5,9 fm og 1,2 fm. Búið er að breyta eigninni frá upprunalegum teikningum en búið er að færa eldhús þar sem áður var borðstofa og eru nú tvö lítil herbergi þar sem eldhús var áður. Sjá nánar á meðfylgjandi teikningum.

Nánari lýsing eignar:
Forstofa með fatahengi. Úr forstofu er gengið niður í kjallara.
Hol/gangur með skápum.
Stofa er björt með stórum gluggum, opið á milli stofu og eldhúss með tvöfaldri franskri hurð.
Eldhús var endurnýjað árið 2021 með fallegri innréttingu úr ikea, tengi fyrir uppþvottavél, bakaraofn í vinnuhæð og span helluborð, sérsmíðaðar hillur á vegg og flísar á milli. Útgengt úr eldhúsi á suðursvalir og þaðan er stigi niður í gróinn garðinn.  Opið er á milli stofu og eldhúss með tvöfaldri franskri hurð en búið er að færa eldhús og er staðsetning þess ekki í samræmi við upprunalegar teikningar.
Hjónaherbergi með fataskápum og vínilparket á gólfi.
Herbergi II með fataskáp og vínilparket á gólfi.
Herbergi III er innaf forstofu með skáp og vínilparket á gólfi.
Herbergi IV með vínilparket á gólfi.
Baðherbergi var endurnýjað árið 2023 og er flísalagt í hólf og gólf með upphengt salerni, walk in sturtu og opnanlegum glugga.
Sameiginlegt þvottahús er í kjallara ásamt sérgeymslum (5,9 fm og 1,2fm). Innangengt úr forstofu niður í kjallara.
Gólfefni íbúðar eru vínilparket og flísar.

Eignin hefur fengið gott viðhald og er mikið endurnýjuð að innan sem utan:
- Allir gluggar í íbúð og sameign endurnýjaðir árið 2025
- Húsið múrviðgert og málað árið 2025
- Baðherbergi endurnýjað árið 2023
- Eldhús endurnýjað og fært árið 2021
Skv. upplýsingum sem eigendur fengu þegar þeir keyptu íbúðina þá var áður búið að endurnýja:
- dren- og skólplagnir ásamt vatnslögn inn í hús
- ofna og ofnalagnir
- járn á þaki og þakrennur
- raflagnir og rafmagnstöflu

Allar nánari upplýsingar veitir Freyja Rúnars löggiltur fasteignasali í síma 694-4112 eða [email protected]
---------------------------------------------------------------------------

Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.

Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 3.800 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustugjald kaupanda: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.

Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

img
Freyja Rúnarsdóttir
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
LANDMARK fasteignamiðlun
Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone
img

Freyja Rúnarsdóttir

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
5. ágú. 2020
51.900.000 kr.
55.800.000 kr.
111.2 m²
501.799 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
LANDMARK fasteignamiðlun

LANDMARK fasteignamiðlun

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur
phone

Freyja Rúnarsdóttir

Hlíðasmári 2, 201 Kópavogur