Löggiltir fasteignasalar innan Félags fasteignasala:
Páll Þórólfsson
Guðbjörg Guðmundsdóttir
Jason Kristinn Ólafsson
Sverrir Pálmason
Vista
fjölbýlishús

Básbryggja 15

110 Reykjavík

88.900.000 kr.

713.483 þ.kr./m2
Fasteignanúmer

F2243621

Fasteignamat

85.500.000 kr.

Brunabótamat

64.650.000 kr.

Áhvílandi

0 kr.

Arion banki – Reikna lán
Upplýsingar
Verðsaga
svg
Byggt 1999
svg
124,6 m²
svg
4 herb.
svg
1 baðherb.
svg
3 svefnh.
svg
Þvottahús
svg
Sameiginl. inngangur

Lýsing

Jason Kr. Ólafsson sími 7751515 - [email protected] og Betri Stofan fasteignasala kynna: Básbryggja 15, 110 Reykjavík.

Vel skipulögð 4ra herbergja íbúð með tvennum svölum á eftirsóttum stað við Básbryggju

Við Básbryggju 15 er til sölu björt og vel skipulögð 4ra herbergja íbúð á 2. hæð í rólegu og fjölskylduvænu hverfi. Íbúðin er 124,6 fm að stærð, þar af 6,7 fm sérgeymsla.

Miðja íbúðarinnar er bjart alrými þar sem eldhús, borðstofa og stofa tengjast. Frá stofu er útgengt á rúmgóðar, skjólgóðar suðvestursvalir sem nýtast vel allt árið og eru mikið notaðar. Eldhús er með vandaðri innréttingu, nýlegum eldhústækjum og góðu skápaplássi og tengist alrýminu vel.
Svefnherbergin eru þrjú. Hjónaherbergið er með fataskáp og útgengi á rúmgóðar austursvalir. Tvö önnur rúmgóð svefnherbergi eru með fataskáp. Parket er á gólfum í íbúðarrýmum og flísar í votrýmum.
Baðherbergi er flísalagt, gólf og veggir, með innréttingu, baðkari og sturtuklefa. Upphengt salerni og handklæðaofn. Sér þvottahús er innan íbúðar.
Í sameign fylgir sérgeymsla, vagna- og hjólageymsla sem og sérdekkjageymsla. Húsið hefur fengið reglulegt utanhússviðhald á undanförnum árum.

Gott aðgengi með næg bílastæði. Afar falleg sameiginleg skjólgóð lóð að evrópskri fyrirmynd er fyrir aftan húsið. Framan við húsið er  fótboltavöllur og mjög gott leiksvæði fyrir börn með fjölbreyttum leiktækjum og ærslabelg. Þetta er vinsælt leiksvæði barna í hverfinu. Leiksvæðið er í sjónlínu frá íbúðinni og því auðvelt að fylgjast með börnum að leik. Stutt er í leikskóla og grunnskóla í Hamrahverfi Grafarvogs. 3 mín gangur er á strætóstöð.

Bryggjuhverfið er einstaklega fallegt og vel skipulagt með smábátahöfn í hverfinu sem gefur því sérstakan svip og sjarma. Bryggjuhverfið þykir sérstaklega skjólsælt fyrir ríkjandi norðan og suðvestanáttum og býður upp á fallegar göngu- og hjólaleiðir til nærliggjandi svæða á borð við Geirsnef, Elliðaárdal og Grafarvog. Stutt er á stofnleiðir og skammt að sækja alla helstu þjónustu upp á Höfða s.s. heilsugæslu, matvöruverslun, mathöll o.m.fl.

Allar nánari upplýsingar veitir Jason Kristinn Ólafsson, sími 7751515 netfang: [email protected], og löggiltur fasteignasali.


Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.  
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

img
Jason Kristinn Ólafsson
Lögg.fasteignasali innan félags fasteignasala
Betri Stofan Fasteignasala
Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone
img

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
Ár
Fasteignamat
Kaupverð
Stærð
Fermetraverð
2. ágú. 2012
24.300.000 kr.
25.200.000 kr.
124.6 m²
202.247 kr.
14. apr. 2009
27.310.000 kr.
38.000.000 kr.
124.6 m²
304.976 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Betri Stofan Fasteignasala

Betri Stofan Fasteignasala

Borgartúni 30, 105 Reykjavík
phone

Jason Kristinn Ólafsson

Borgartúni 30, 105 Reykjavík