Opið hús: Þangbakki 10, 109 Reykjavík, Íbúð merkt: 01 05 04. Eignin verður sýnd mánudaginn 13. apríl 2026 milli kl. 17:00 og kl. 17:30.
Lýsing
*** Íbúðin er laus við kaupsamning ****
Þangbakki 10, íbúð merkt 0504 og 5D er skráð 71,3 fm. skv. fasteignaskrá HMS, þar af er íbúðin sjálf 64,1 fm. og geymsla í sameign 7,2 fm. Íbúðin er í lyftuhúsi
með frábæru útsýni til norð-vesturs yfir Esjuna og borgina.
Nánari lýsing eignar: Gengið er inn um sameiginlegan inngang á suðurhlið hússins. Þar er góð aðkoma með stóru andyri, nýlegt myndavéla -dyrasímakerfi og póstkassar.
Forstofuhol: komið er inn í opið alrými en í forstofunni er fataskápur. Stofan er opin og bjart rými með stórum gluggum mót norð-vestri og með frábæru útsýni.
Stofan rúmar vel bæði setustofu og borðstofu en eldhús er tengt stofunni á vinstri hönd.
Eldhúsið er með góðri innréttingu með nægu skápaplássi og ágætri vinnuaðstöðu, tengi fyrir uppþvottavél. Borðkrókur við glugga í eldhúsinu en þaðan er gengið út á stórar svalir með frábæru útsýni.
Baðherbergi er snyrtilegt og vel skipulagt, það er töluvert endurnýjað, flísalagt með góðum sturtuklefa með glervegg, innréttingu undir vaski og upphengt salerni ásamt handklæðaofni.
Svefnherbergið er sérlega rúmgott með góðum fataskáp meðfram einum vegg.
Gólfefni er nýlegt harðparket og flísar.
Íbúðin er vel um gengin og afar snyrtileg.
Á hæðinni er sameiginlegt þvottahús fyrir 5 íbúðir sem eru á hæðinni, það er snyrtileg og góð aðstaða með þvottavél og snúrum.
Í sameign er sér geymsla íbúðarinn sem er 7,2 fm. auk þess sem snyrtileg vagna- og hjólageymsla er aðgengileg á vinstri hönd við inngang í húsið.
Frábær staðsetning í Mjóddinni við alla þjónustu, verslun og heilsugæslu og góða tengingu við samgöngukerfi borgarinnar.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Þóra Birgisdóttir Lögg. fasteignasali í s. 777-2882 eða [email protected]
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Esja fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.