Opið hús: Litlikriki 2, 270 Mosfellsbær, Íbúð merkt: 304. Eignin verður sýnd mánudaginn 6. apríl 2026 milli kl. 15:00 og kl. 15:30.
Lýsing
Eignin er skráð 155,9m2, þar af íbúð 113,6 m2, geymsla 12,2 m2 og bílskúr 30,1 m2
Í eigninni eru 3 góð svefnherbergi með flottu útsýni yfir Esjuna, eldhús, stofa, borðstofa, baðherbergi, þvottahús og svalir til suðurs. Eigninni fylgir bílskúr og geymsla sem innangengt er úr sameign.
Góð staðsetning miðsvæðis í Mosfellsbæ. Stutt í skóla, íþróttasvæði, verslun, heilsugæslu og alla helstu þjónustu.
Nánari upplýsingar og bóka skoðun: Telma Rut Frímannsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 772 3555, tölvupóstur [email protected].
Komið er inn í forstofu og þaðan í opið alrými sem samanstendur af stofu, borðstofu og eldhúskróki á hægri hönd. Til vinstri er svefnherbergisgangur og baðherbergi. Þvottahúsið er aðgengilegt úr eldhúsi og anddyrinu. Útgengt á svalir úr borðstofunni.
Nánari lýsing:
Forstofa er flísalögð og með góðum skáp.
Eldhús er með fallegri innréttingu og flísum á gólfi. Gott skápa og vinnupláss. Þvottahús er inn af eldhúsi.
Stofa/borðstofa eru samliggjandi í opnu rými með eldhúsi. Parket er á gólfi og útgengi á suður svalir.
Hjónaherbergi er með parketi á gólfi, góðum fataskápum og flottu útsýni yfir Esjuna.
Herbergi II-III eru bæði með parketi á gólfi og fataskápum.
Baðherbergi Með fallegri innréttingu og fínu skápaplássi. Baðkari, sturtu, handklæðaofni og upphengdu salerni. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottaherbergi er með aðgengi bæði frá eldhúsi og forstofu. Flísar á gólfi og skolvaskur í innréttingu. Þvottavélar í vinnuhæð.
Bílskúr með innkeyrsluhurð. Þaðan er gengið inn í geymslu sem síðan gengur inn á sameignar gang. Bílskúrinn er 30,1fm
Nánari upplýsingar veitir:
Telma Rut Frímannsdóttir aðstoðarmaður fasteignasala, í síma 772-3555, eða [email protected]
Þórhallur Biering löggiltur fasteignasali, í síma 896-8232 eða [email protected]
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:
1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Skoðunarskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Betri Stofan fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.